Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna upplifði almyrkvann á sólu sem varð 12. ágúst. Samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallups upplifðu 89 prósent sólmyrkvann en ellefu prósent gerðu það ekki.
Flestir, 60 prósent, upplifðu sólmyrkvann heima hjá sér, 30% upplifðu hann annars staðar í eigin bæjarfélagi og ellefu prósent ferðuðust milli landshluta til að upplifa hann.
Því eldra sem fólk er því líklegra var það til að upplifa sólmyrkvann heima hjá sér. Þeir sem voru gjarnastir á að ferðast úr einum landshluta í annan til að sjá sólmyrkvann voru einstaklingar á sextugsaldri, 16 prósent þeirra lögðust í ferðalag.
Skýjað var yfir stórum hluta landsins þegar sól myrkvaðist. Því var minni þörf fyrir sólmyrkvagleraugu en annars hefði verið.
14 prósent notuðu slík gleraugu til að horfa á sólmyrkvann og önnur 14 prósent notuðu þau að hluta. Algengast var að yngsta fólkið horfði á sólmyrkvann með þar til gerðum gleraugum að hluta eða í heild, 40 prósent þeirra notuðu sólmyrkvagleraugu í meiri eða minni mæli. Minnst var um að elstu tveir aldurshóparnir notuðu slík gleraugu, 22 prósent þeirra bráu gleraugunum upp.