Hroð­virknis­legt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn - Vísir

Hroð­virknis­legt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn - Vísir

Hroð­virknis­legt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn - Vísir

Hvar er draumurinn? er hugarfóstur Höskuldar Þórs Jónssonar, sem er allt í senn leikstjóri, handritshöfundur og klippari myndarinnar. Þar að auki er hann framleiðandi myndarinnar ásamt kærustu sinni, Heklu Nínu Hafliðadóttur. Kvikmyndin er frumraun Höskuldar sem hefur verið virkur í leikhússenunni og kom að stofnun sviðslistahússins Afturámóti.

Plakatið fyrir Hvar er draumurinn?

Höskuldur hefur leikstýrt nokkrum söngleikjum með tónlist eftir íslenskar hljómsveitir á síðustu árum, þar á meðal Með allt á hreinu í Háskólabíói í sumar. Höskuldur gerði söngleik úr lögum Sálarinnar hans Jóns míns með nemendum Verslunarskólans árið 2023 og hefur síðan þá verið að þróa kvikmynd upp úr söngleiknum.

Fjöldi ungra leikara fer með burðarhlutverk í kvikmyndinni. Mikael Kaaber og Sigríður Ragnarsdóttir eru í aðalhlutverkum og þeim til halds og trausts eru Berglind Alda Ástþórsdóttir, Kolbeinn Sveinsson, Mímir Bjarki Pálmason, Ingi Þór Þórhallsson og Hrafnhildur Ingadóttir. Reyndari kanónur koma einnig fyrir, Salka Sól Eyfeld og Sálar-meðlimirnir Stefán Hilmarsson og Guðmundur Jónsson.

Hvar er draumurinn? var frumsýnd 3. september síðastliðinn og er sýnd í Sambíóunum, Smárabíói og Laugarásbíói.

Glymskrattasöngleikur um unga elskhuga

Söngleikir eru sígild kvikmyndagrein og skiptast almennt í tvennt. Annars vegar hefðbundna söngleiki með frumsaminni tónlist, svo sem La La Land og Með allt á hreinu. Hins vegar glymskrattasöngleiki (e. juke-box musicals) þar sem notuð er tónlist sem fyrir er.

Glymskrattasöngleikir nýta gjarnan tónlist ákveðins tónlistarmanns eða hljómsveitar til að segja sögu, svo sem í Mamma Mia! eða Across the UniverseHvar er draumurinn? fellur í þennan seinni flokk og nýtir tónlist Sálarinnar til að segja sögu persónanna.

Mamma Mia og Rock of Ages eru tveir glymskrattasöngleikir.

Höskuldur hefur sjálfur sagst sækja innblástur til eldri kvikmynda á borð við Grease, Með allt á hreinu og Sódómu Reykjavík og sést það í beinum og óbeinum tilvísunum. Sambandið milli aðalpersónanna tveggja ber ákveðinn Grease-keim þar sem strákurinn er í „ókræsilegum“ félagsskap en stúlkan lifir vernduðu forréttindalífi. Ummerki hinna myndanna tveggja sjást í stemmingunni sem er kölluð fram í myndinni.

Hvar er draumurinn? er ástarsaga sem gerist í Reykjavík á tíunda áratug síðustu aldar og fjallar um tvær ungar manneskjur, söngvarann Bjart (Mikael Kaaber) og ballettdansarann Hófí (Sigríði Ragnars) sem þrá bæði annað líf en það sem þau lifa. 

Bjartur rekst á Hófí fyrir utan skemmtistaðinn Sódómu.

Bjartur syngur reglulega á skemmtistaðnum Sódómu þegar hann er ekki að hanga með vinum sínum, Drífu (Berglindi Öldu), Atla (Kolbeini Sveins) og Tony (Mími Bjarka). Bjart dreymir um að fara í leiklistarnám og fer í prufu fyrir skóla erlendis en veit að draumurinn er fjarlægur. Ballettdansarinn Hófí er orðin þreytt á sínu atburðalitla lífi sem einkennist af dansæfingum, ströngum lærdómi og þurrum teboðum. 

Bjartur og Hófi rekast hvort á annað og fella hugi saman, ströngum föður hennar (Stebba Hilmars) til mikillar armæðu. Á sama tíma berast þær fregnir að loka eigi skemmtistaðnum Sódómu vegna skulda eigandans Kötu (Sölku Sólar) þannig að Bjartur og vinir hans ákveða að taka málin í eigin hendur.

Salka Sól fer með hlutverk skemmtistaðaeigandans Kötu sem hefur gengið brösuglega að reka Sódómu.

Vanþróað samband og hávær hljóðblöndun

Strákur á jaðrinum og stelpa úr forréttindastöðu, strangi faðirinn og staðurinn sem þarf að bjarga. Þetta eru ekki frumlegustu sagnaminnin enda eru söngleikjamyndir sjaldan mjög frumlegar. Þær falla frekar inn í hefðbundinn strúktur og gefa tónlistinni sviðsljósið. Það á sannarlega við um þessa mynd.

Óhætt er að segja að tónlistin fái að njóta sín því allir helstu slagarar Sálarinnar eru teknir fyrir í um fimmtán til tuttugu söngatriðum. Fyrir áhorfið gerði undirritaður sér ekki grein fyrir því hvað sveitin ætti mörg sígild lög og gaman að þeim sé lyft svona upp.

Stærsti gallinn við tónlistina er hins vegar hljóðvinnslan sem er verulega ábótavant. Hljóðfærin, sérstaklega trommur og gítarar, eru í mörgum laganna svo hátt stillt miðað við restina að maður fær nánast illt í eyrun af hávaðanum. Það skemmir töluvert upplifunina og er mikill ókostur þegar stærstur hluti myndarinnar er undirlagður tónlist.

Stebbi Hilmars leikur föður Hófíar.

Tónlistaratriðin verða sömuleiðis hálfgerð hækja fyrir Höskuld hvað söguna varðar. Nokkrum sinnum koma margar tónlistarsenur í röð án almennilegs uppbrots. Taktur myndarinnar verður fyrir vikið ójafn og tónlistarsenurnar fá ekki andrými til að njóta sín. Sum laganna virðast jafnframt hugsuð einungis fyrir stemminguna en ekki frásögnina. Lög í söngleikjum eiga að ýta sögunni áfram og þróa persónurnar en maður finnur takmarkað fyrir því hér.

Þetta birtist hvað skýrast í sambandi Bjarts og Hófíar sem er ekki nægilega þróað þegar það á að vera kjarni myndarinnar. Bjartur og Hófí hittast fyrst í byrjun myndar í frábærri „meet cute“-senu og skiptast þar á örfáum orðum. Þau hittast aftur í mýflugumynd á skemmtistaðnum Sódómu og hann býður henni í bíó. Á stefnumótinu syngja þau svo saman skemmtilegan dúett og eru í kjölfarið orðin par án þess að áhorfendur hafi almennilega fengið að sjá þau eiga samskipti saman nema í söng. 

Hófí og Bjartur eru engin Sandy Olsson og Danny Zuko.

Þetta er vissulega söngleikur en áhorfendur verða samt að fá að kynnast þeim sem pari. Sambandið er nánast alfarið sýnt í gegnum söng og þó textar Sálarinnar séu ágætir þá kynnist maður persónunum takmarkað. Maður fær enga tilfinningu fyrir því hvað laðar þau hvort að öðru eða þá hvað bindur þau saman sem par. 

Hófí er sérstaklega vanþróuð persóna, eiginlega tvívíð. Hún þráir eitthvað meira en sitt slétta og fellda líf en áhorfendur fá aldrei vita hvað það nákvæmlega er. Að myndinni lokinni er maður engu nær um hennar drauma eða ástríður nema þá að hún elskar Bjart.

Parið er innblásið af Sandy og Danny í Grease en þar eru persónurnar dregnar mun skýrari dráttum og með almennilega söguboga. Það er erfiðara að kyngja klisjunum þegar þær hafa ekkert meira við sig. Þótt samband Bjarts og Hófíar sé vanþróað verður samt að segjast að kemistrían milli Mikaels og Sigríðar er ansi góð. 

Vinirnir standa upp úr

Áhorfendur fá hins vegar nægan tíma með vinum Bjarts á Sódómu, þeim Tony, Drífu og Atla. Þar er hinn stóri þráður myndarinnar sem snýr að yfirvofandi gjaldþroti Sódómu og tilraunum vinanna til að bjarga staðnum. Leikararnir þrír skila góðri frammistöðu sem birtist ekki síst í því hvað vinahópurinn er sannfærandi eining. 

Tony, Atli og Drífa mynda skemmtilegt tríó.

Mímir Bjarki leikur hvatvísa og fúla leðurjakkatöffarann Tony og kemur óörygginu og pirringnum vel til skila í sínum leik. Tony er sá eini þeirra sem fær almennilegan söguboga. 

Rétt eins og Hófí er Drífa heldur rýr persóna, lítið meira en trausta vinkonan sem er til staðar fyrir vini sína. Berglind Alda gerir þó mikið úr litlu, situr vel í karakternum, gefur Drífu ákveðinn presens og syngur sín lög vel.

Óumdeilanlegur senuþjófur myndarinnar er Kolbeinn Sveinsson í hlutverki furðufuglsins Atla með sínar ljósu strípur og undarlegu orku. Atli bryddar stöðugt upp á furðulegum umræðuefnum eða óvæntum vinklum. Kolbeinn býr yfir sterkri gríntaug, frábærum tímasetningum og sprautar vel þegnum húmor inn í söguna.

Ingi Þór og Molly Carol eru frábær í sínum hlutverkum.

Heilt yfir er leikhópurinn nokkuð jafn og lítið um stór feilspor. Fyrir utan stærstu hlutverkin má sérstaklega nefna Molly Mitchell sem leikur vel stífu ballerínuna Freyju, Inga Þór sem trygga og vansæla húsvörðinn Davíð og Stebba Hilmars sem er nokkuð krúttlegur sem strangi faðirinn. Salka Sól dregur stysta stráið með karakternum Kötu sem er ein stór klisja og hefur frekar lítið við sig, fyrir utan nokkur góð lög.

Vinirnir reyna hvað þeir geta til að bjarga Sódómu og leggja allt undir. Ástarsambandið tvinnast auðvitað saman við þann þráð þegar líður að hápunkti myndarinnar. Sú flétta einkennist af leikhúslegu melódrama sem gerir lokahnykkinn fyrir vikið dálítið kjánalegan. Þar finnst manni eins og Höskuldur hefði þurft að fjarlægjast leikhúsið meira og finna eitthvað sem virkaði betur á skjánum.

Niðurstaða

Hvar er draumurinn? er skemmtileg mynd þrátt fyrir að vera ekki fullkomin. Verkið er frumraun fjölmargra þeirra sem koma að henni, þar á meðal Höskuldar sem er í senn leikstjóri, handritshöfundur og klippari. Af þessum þremur hlutverkum er leikstjórnin hvað sterkust enda nær hann fram mörgum góðum frammistöðum hjá leikhópnum. Klippingin er misjöfn, ágæt í kraftmeiri senum en svo er fulloft feidað í svart. Allrasíst er svo handritið sem hefði þurft að styrkja og þróa betur.

Útlit myndarinnar ber þess ekki merki að myndin hafi verið gerð án styrkja. Staðarval myndarinnar er frábært, búningarnir sannfærandi og svo er litgreiningin afar fagmannlega gerð. Kóreógrafía og myndataka í tónlistarsenunum lukkast misvel. Þegar kemur að rólegri einsöngsatriðum verður uppbygging þeirra og myndataka heldur flöt. Reynsla Höskuldar úr dansi og leik nýtist hins vegar vel í stærri hópatriðum þar sem tekst að búa til góða dýnamík með klippingu og danshreyfingum.

Sigríður fór einnig með hlutverk Hófíar þegar söngleikurinn var settur á svið í Versló.

Leikarar myndarinnar eru sterkasti hlekkurinn og ná þar margir að gera mikið úr litlu. Mikael Kaaber er orðinn einn fremsti hjartaknúsari þjóðarinnar og á auðvelt með að fanga áhorfendur. Sigríður Ragnarsdóttir, sem er á lokaári á leikarabraut í LHÍ, á flotta frumraun á stóra skjánum og verður gaman að fylgjast með henni. Berglind Alda og Mímir Bjarki eru bæði mjög pottþétt í sínum rullum og það er svo Kolbeinn Sveinsson sem stelur senunni trekk í trekk.

Fyrir utan mislukkaða hljóðvinnslu (sem þyrfti sannarlega að bæta úr) er tónlistin í myndinni frábær. Lög Sálarinnar standa fyrir sínu og leikararnir setja sinn svip á þau. Fremstur meðal jafningja er Ingi Þór sem syngur tvö lög gullfallega með sinni blíðu söngrödd. 

Hvar er draumurinn? er skemmtilegt bíó með prýðilegum leikurum, sígildum slögurum og góðu dassi af húmor. Það er mikið þrekvirki að koma svona verkefni úr vör án styrkja og með ástríðuna eina að vopni. Höskuldur Þór á þar mikið hrós skilið og verður gaman að sjá hvað hann tekur sér fyrir hendur næst.

#hljóð #hroðvirknislegt #klisjur #setja #strik


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262931777d/hrod-virknis-legt-hljod-og-klisjur-setja-strik-i-reikninginn

📰 Aðrar fréttir

Rýfur þögnina um nálægt-dauða-upplifun sem hún hélt leyndri í áratugi
📅 09.09.2026 👁️ 1
Rýfur þögnina um nálægt-dauða-upplifun sem hún hélt leyndri í áratugi
Leikkonan Sharon Stone hefur rofið áratuga þögn til að deila óútskýranlegum, yfirnáttúrulegum sýnum sem hún upplifði þegar hún var að jafna sig eftir ...
Setur stórleikarans nær sokkið í jörðu
📅 09.09.2026 👁️ 1
Setur stórleikarans nær sokkið í jörðu
Höfðingjasetur Nicolas Cage í Malibu, 10,5 milljóna dollara strandeign, er bókstaflega að sökkva í jörðina. Á myndum sem PageSix birtir má sjá djúpa h...
Haraldur Noregs­konungur borinn til grafar í dag - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Haraldur Noregs­konungur borinn til grafar í dag - Vísir
Haraldur lést 28. ágúst síðastliðinn, 89 ára að aldri. Hann verður jarðsunginn frá dómkirkju Óslóar klukkan ellefu í dag. Kistan verður svo flutt til ...
„Ég er hræddur við þessa menn“ - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
„Ég er hræddur við þessa menn“ - Vísir
Aðalmeðferð í máli þriggja manna, þeirra Kareem M. M. Abufarhah, Qossay Ali Yahya Alsadi og Mohamed Sayidali Ahmed, hófst í gær en ekki tókst að klára...
Hvað borgar þú í skatta? - Skattareiknivél Viðskiptaráðs
📅 09.09.2026 👁️ 1
Hvað borgar þú í skatta? - Skattareiknivél Viðskiptaráðs
Viðskiptaráð hefur smíðað gagnvirka Skattareiknivél til að varpa ljósi á hversu mikið einstaklingar borga í skatt. Hægt er að slá inn eigin forsendur ...
US Open 2026 results: Carlos Alcaraz beaten by Ben Shelton in epic quarter-final
📅 09.09.2026 👁️ 1
US Open 2026 results: Carlos Alcaraz beaten by Ben Shelton in epic quarter-final
Carlos Alcaraz's US Open title defence is over after a dramatic five-set quarter-final loss to Ben Shelton that ends at 03:34 local time - the latest ...
Rétta yfir rúss­neskum skip­stjóra sem sleit sæ­strengi við Finn­land - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Rétta yfir rúss­neskum skip­stjóra sem sleit sæ­strengi við Finn­land - Vísir
Auk rússneska skipstjórans er bátsmaður frá Aserbaídsjan á flutningaskipinu Fitburg ákærður fyrir alvarleg skemmdarverk og truflanir á fjarskiptakerfu...
Trump bannar kanadískt áfengi í nýrri lotu tollastríðs
📅 09.09.2026 👁️ 1
Trump bannar kanadískt áfengi í nýrri lotu tollastríðs
Trump bannar kanadískt áfengi í nýrri lotu tollastríðs Enn harðn­ar við­skipta­deila Banda­ríkj­anna og Kan­ada með nýj­um toll­um, inn­flutn­ings­ban...
Haraldur konungur jarðsunginn í dag
📅 09.09.2026 👁️ 1
Haraldur konungur jarðsunginn í dag
Haraldur Noregskonungur verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Ósló í dag.Fulltrúar konungsfjölskyldna Evrópu eru mættir til Noregs til að kveðja Haral...
Ekkert heitt vatn á Suður­nesjum í dag - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Ekkert heitt vatn á Suður­nesjum í dag - Vísir
Framkvæmdirnar verða við hitaveitu við Njarðarbraut og við dælustöð á Fitjum. Klukkan fjögur í nótt var lokað fyrir heitt vatn í Ytri-Njarðvík, Keflav...
Stærð­fræðin vefst fyrir ís­lenskum stúlkum - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Stærð­fræðin vefst fyrir ís­lenskum stúlkum - Vísir
Þegar árangurinn í PISA er greindur eftir kynjum má sjá að drengir standa stúlkum framar í stærðfræði en stúlkurnar eru með betri árangur í lesskilnin...
Heitavatnslaust á Suðurnesjum í dag
📅 09.09.2026 👁️ 1
Heitavatnslaust á Suðurnesjum í dag
Heitavatnslaust verður í dag á Suðurnesjum vegna framkvæmda HS Veitna við stofnæð hitaveitu við Njarðarbraut og framkvæmda HS Orku við dælustöð á Fitj...
Leita enn að Renoir-þjófunum - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Leita enn að Renoir-þjófunum - Vísir
Í gærmorgun, rétt fyrir klukkan sex á staðartíma, fór innbrotskerfið í gang í Renoir-safninu í bænum Cagnes-sur-Mer sem er rétt fyrir utan Nice í Frak...
Ekki í sjónmáli að PCC endurræsi vinnsluna – Sveitarstjórn vill gagnaver
📅 09.09.2026 👁️ 0
Ekki í sjónmáli að PCC endurræsi vinnsluna – Sveitarstjórn vill gagnaver
Opnun PCC á Bakka við Húsavík er ekki í sjónmáli á næstu vikum, að sögn stjórnenda. Sveitarstjórn hefur undirritað fjölda viljayfirlýsinga um iðnað se...
Rignir víðast en 16 stiga hiti austan og norðaustan til
📅 09.09.2026 👁️ 1
Rignir víðast en 16 stiga hiti austan og norðaustan til
Íbúar víðast hvar á landinu gætu fengið verri hugmyndir í dag en að draga fram vatnsheld föt því það rignir líklega alls staðar nema á Norðaustur- og ...
Bannar inn­flutning á kana­dískum vörum - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Bannar inn­flutning á kana­dískum vörum - Vísir
Í síðasta mánuði lögðu Bandaríkjamenn toll á ýmsar kanadískar vörur og svöruðu Kanadamenn með svipuðum tollum. Innflutningsbannið mun taka gildi undir...
Bætir í úr­komu síð­degis - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Bætir í úr­komu síð­degis - Vísir
Þar sem lægðin kemur úr suðvestri ætti Norðaustur- og Austurland að haldast þurrt og verður eins og kom fram jafnframt hlýjast þar. Vindurinn verður s...
€9.4 million investment moves 51 new public homes in Adeje a step closer
📅 09.09.2026 👁️ 1
€9.4 million investment moves 51 new public homes in Adeje a step closer
Plans for 51 new public homes in Adeje have moved another step forward after the Canary Islands Government started the contracting process for the €9....
Biður Loga af­sökunar „á dónaskapnum“ - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Biður Loga af­sökunar „á dónaskapnum“ - Vísir
„Í gær skrifaði ég reiðipóst um framgöngu ríkisstjórnarinnar í málefnum Bókasafnssjóðs. Ég sagði hæstvirtum menningarmálaráðherra að hoppa upp í ... É...
Vanti ekki fjár­magn eða hjálpar­gögn heldur þrýsting á Ís­rael - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Vanti ekki fjár­magn eða hjálpar­gögn heldur þrýsting á Ís­rael - Vísir
„Staðan er skelfileg,“ segir Dr. Younis Al-Khatib, forseti palestínska Rauða hálfmánans (PRCS), um stöðuna á Gasa í dag. Frá október 2023 hefur palest...
Sex gistu í fanga­geymslu í nótt - Vísir
📅 09.09.2026 👁️ 1
Sex gistu í fanga­geymslu í nótt - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Nokkrir voru kærðir fyrir að stela úr verslun í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sér um vesturhluta borgarinnar og ...
Santa Cruz de Tenerife crowned Spain’s Capital of Gastronomy for 2027
📅 09.09.2026 👁️ 0
Santa Cruz de Tenerife crowned Spain’s Capital of Gastronomy for 2027
Santa Cruz de Tenerife has officially been chosen as the Spanish Capital of Gastronomy for 2027, giving the island's capital a major opportunity to sh...
Ekið á vegfaranda á rafmagnshlaupahjóli
📅 09.09.2026 👁️ 1
Ekið á vegfaranda á rafmagnshlaupahjóli
Ekið var á vegfaranda á rafmagnshlaupahjóli í Kópavogi eða Breiðholti í gær eða nótt, samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Einstaklingur...
Dense fog causes flight cancellations and disruption at Tenerife North Airport
📅 09.09.2026 👁️ 1
Dense fog causes flight cancellations and disruption at Tenerife North Airport
Dense fog caused disruption at Tenerife North Airport yesterday evening, Tuesday, forcing the cancellation of at least two flights and creating diffic...
Thomas Möller skrifar: „Við getum gert þetta sjálf“
📅 09.09.2026 👁️ 1
Thomas Möller skrifar: „Við getum gert þetta sjálf“
Mynd Í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst var þetta eitt aðal slagorð
Ætlar að rjúfa þing og boða til þingkosninga
📅 09.09.2026 👁️ 1
Ætlar að rjúfa þing og boða til þingkosninga
Þingkosningar verða í Serbíu 25. október næstkomandi en til stóð að þær yrðu ekki haldnar fyrr en í desember á næsta ári. Aleksandar Vučić, forseti Se...
Funeral for PC Matthew Blades killed in Middlesbrough A66 crash
📅 09.09.2026 👁️ 1
Funeral for PC Matthew Blades killed in Middlesbrough A66 crash
PC Matthew Blades' family say he brought light and laughter into every room.
Drug gangs exploited and raped us as teens, then police failed us, women tell BBC
📅 09.09.2026 👁️ 1
Drug gangs exploited and raped us as teens, then police failed us, women tell BBC
Four victims describe being targeted by criminals and then not being taken seriously by the authorities.
Búið að aflýsa 177 flugum til og frá Bretlandi í dag
📅 09.09.2026 👁️ 1
Búið að aflýsa 177 flugum til og frá Bretlandi í dag
Búið er að aflýsa 177 flugum til og frá flugvöllum á Bretlandi í dag, samkvæmt flugumferðarsíðunni Flightradar 24. Í færslu Flightradar 24 á X segir a...
Áfram truflanir í Bretlandi – Búið að aflýsa 177 flugferðum
📅 09.09.2026 👁️ 1
Áfram truflanir í Bretlandi – Búið að aflýsa 177 flugferðum
Búið er að aflýsa 177 flugum til og frá flugvöllum á Bretlandi í dag, samkvæmt flugumferðarsíðunni Flightradar 24. Í færslu Flightradar 24 á X segir a...
Setur á innflutningsbann á nokkrar tegundir kanadísks áfengis og mysu
📅 09.09.2026 👁️ 1
Setur á innflutningsbann á nokkrar tegundir kanadísks áfengis og mysu
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað innflutningsbann við ákveðnum vörum frá Kanada og tollahækkanir á aðrar.Þetta er samkvæmt forsetatils...
Lindsay Clancy jurors speak out on what led to mistrial
📅 09.09.2026 👁️ 1
Lindsay Clancy jurors speak out on what led to mistrial
The three jurors said after 40 hours, a lone male juror wouldn't agree with the rest of the panel to find Clancy not guilty by reason of insanity.
Ancient tomb found in Peru in a largely undisturbed state
📅 09.09.2026 👁️ 1
Ancient tomb found in Peru in a largely undisturbed state
The burial site of the ancient pre-Incan Chimu culture was found largely intact.
Zelensky fundaði með Gahr Støre
📅 09.09.2026 👁️ 1
Zelensky fundaði með Gahr Støre
Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs og Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu hittust á fundi í Osló í gærkvöld. Norska ríkisútvarpið greinir frá því...
Alan Carr holds back tears on special night at National Television Awards
📅 09.09.2026 👁️ 1
Alan Carr holds back tears on special night at National Television Awards
The comedian and Celebrity Traitors win big - see a full list of winners and nominees from the 26th edition of the awards.
US forces hit five Iranian tankers as Tehran targets American base in Jordan
📅 09.09.2026 👁️ 1
US forces hit five Iranian tankers as Tehran targets American base in Jordan
Oil prices edged closer to $100 a barrel after an escalation in the tit-for-tat strikes between the US and Iran.
US strikes Iranian oil tankers as Tehran targets American base in Jordan
📅 09.09.2026 👁️ 1
US strikes Iranian oil tankers as Tehran targets American base in Jordan
Oil prices edged closer to $100 a barrel after an escalation in the tit-for-tat strikes between the US and Iran.
Bandaríkjaher réðst á fimm írönsk olíuflutningaskip
📅 09.09.2026 👁️ 1
Bandaríkjaher réðst á fimm írönsk olíuflutningaskip
Bandaríski herinn réðst á fimm írönsk olíuflutningaskip í gær eftir að Íranar réðust á herskip þeirra. Yfirstjórn Bandaríkjahers segir olíuskipin eyði...
US slaps import ban on Canadian alcohol and other goods
📅 08.09.2026 👁️ 1
US slaps import ban on Canadian alcohol and other goods
It is the latest escalation in a trade war between the two countries, and comes as Canadian retaliatory tariffs on US goods come into force.
US slaps import ban on Canadian alcohol, motorbikes and other goods
📅 08.09.2026 👁️ 1
US slaps import ban on Canadian alcohol, motorbikes and other goods
It is the latest strike in a long trade war, and comes as Canadian counter-tariffs on US goods come into force.
Very hot drinks may damage the food pipe and increase cancer risk
📅 08.09.2026 👁️ 1
Very hot drinks may damage the food pipe and increase cancer risk
Steaming hot liquid can damage the cell lining on the way down to the stomach, experts say.
Segir þörf á sam­heldni innan „evrópsku fjöl­skyldunnar“ - Vísir
📅 08.09.2026 👁️ 1
Segir þörf á sam­heldni innan „evrópsku fjöl­skyldunnar“ - Vísir
Þetta er meðal þess sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir í bréfi sem hún sendi til Helen McEntee, utanríkisráðherra Írlands, í...
The trail of clues that our planet might be heating faster than we realised
📅 08.09.2026 👁️ 1
The trail of clues that our planet might be heating faster than we realised
A curious online row over this summer's heatwaves points to a wider - and worrying - shift in climate science.
The clues that hint our planet might be heating faster than we realised
📅 08.09.2026 👁️ 1
The clues that hint our planet might be heating faster than we realised
A curious online row over this summer's heatwaves points to a wider - and worrying - shift in climate science.
'Constantly on my mind' - 9/11 agony goes on for bereaved, 25 years on
📅 08.09.2026 👁️ 1
'Constantly on my mind' - 9/11 agony goes on for bereaved, 25 years on
As the 25th anniversary approaches, the wait for the alleged mastermind of the attack to be put on trial goes on.
'Constantly on my mind' - 9/11 agony endures for bereaved, 25 years on
📅 08.09.2026 👁️ 1
'Constantly on my mind' - 9/11 agony endures for bereaved, 25 years on
As the 25th anniversary approaches, the wait for the alleged mastermind of the attack to be put on trial goes on.
Frekari tafir á flugumferð á morgun
📅 08.09.2026 👁️ 2
Frekari tafir á flugumferð á morgun
Gera má ráð fyrir að enn verði tafir á flugi um Bretland og Írland á morgun. Flugsamgöngur þar fóru verulega úr skorðum í dag eftir að tæknivandamál k...
Kosningaskjálftinn fer vaxandi í Svíþjóð - Brestir í bandalagi hægri manna þótt það sé að vinna á
📅 08.09.2026 👁️ 2
Kosningaskjálftinn fer vaxandi í Svíþjóð - Brestir í bandalagi hægri manna þótt það sé að vinna á
Næsta sunnudag fara fram þing- og sveitarstjórnarkosningar í Svíþjóð. Taugar stjórnmálaflokkanna virðast vera að þenjast til hins ýtrasta en merki eru...
„Ekkert fyndið eða eðlilegt að gera grín að fullveldi ríkja“
📅 08.09.2026 👁️ 2
„Ekkert fyndið eða eðlilegt að gera grín að fullveldi ríkja“
„Lélegt grín sem þó ber að taka alvarlega,“ segja forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar um afbakað landakort Donalds Trumps Bandaríkjaforseta sem birt var í...
„Hjarta okkar slær nákvæmlega í takt“
📅 08.09.2026 👁️ 2
„Hjarta okkar slær nákvæmlega í takt“
„Hér er botni náð. Við höfum í rauninni eina leið að fara og það er upp,“ segir Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, sem boðaði í dag nýjar aðge...