Opnun PCC á Bakka við Húsavík er ekki í sjónmáli á næstu vikum, að sögn stjórnenda. Sveitarstjórn hefur undirritað fjölda viljayfirlýsinga um iðnað sem gæti hafist á Bakka, gagnaver er þar efst á blaði.
Rúmt ár er síðan slökkt var á kísilmálmframleiðslu PCC á Bakka við Húsavík. Aðeins sautján eru enn við vinnu í verksmiðjunni - í byrjun síðasta árs voru það nærri 150.
Lokunin var áfall fyrir samfélagið. Stjórnendur PCC sögðu lokunina fyrst og fremst mega rekja til erfiðra markaðsaðstæðna. Þær yrðu að batna töluvert svo hægt væri að ræsa vélar á ný.
Það hefur ekki orðið raunin.
Nokkrir áhugasamir um uppbyggingu gagnavers
Sveitarstjórn Norðurþings hefur undirritað viljayfirlýsingar við sex fyrirtæki sem þau vona að fylli að einhverju leyti í skarðið á Bakka, þar má nefna rafeldsneytisframleiðslu, móbergsvinnslu og kolefnisbindingu.
Berþór Bjarnason, sveitarstjóri, segir samtalið lengst komið um uppbyggingu gagnavera.
„Já, við erum búin að vera í sambandi við 2-3 aðila út af gagnavers uppbyggingu á sæmilega stórum skala og við erum frekar bjartýn á það eins og er um að deiliskipuleggja lóð fyrir ákveðið verkefni. Og það deiliskipulag er að fara í kynningu bara á næstu vikum.“
Vona að ráðuneytið leggi tolla á kínverskan kísilmálm
Í samtali við fréttastofu sagðist Thomas Salomon stjórnarformaður PCC enn fullviss um að fyrirtækið hefji starfsemi á ný. Hann tekur um mánaðamót við stjórnartaumunum af Kristínu Önnu Hreinsdóttur, sem lætur þá af störfum sem forstjóri.
Stjórnendur bíða nú einna helst eftir niðurstöðu samráðsnefndar fjármálaráðuneytisins, sem hóf rannsókn í fyrra á innflutningi kísilmálms frá Kína, að beiðni PCC sem segir kínverskan málm seldan hér á undirboðskjörum. Ráðuneytið hefur út september til að ljúka þeirri rannsókn og vísar þá annaðhvort kröfu PCC frá eða leggur toll á kínverskan kísilmálm.
Evrópusambandið hóf eins endurskoðun á innflutningi kínversks kísilmálms til Evrópu um mánaðarmót. Niðurstöður þar gætu eins haft áhrif á íslenskan markað í gegnum EES-samninginn.