Þar sem lægðin kemur úr suðvestri ætti Norðaustur- og Austurland að haldast þurrt og verður eins og kom fram jafnframt hlýjast þar. Vindurinn verður suðlægur í dag á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu.
Á morgun verður víða vætusamt, einkum um landið sunnan- og vestanvert. Hitinn verður á bilinu níu til sextán stig, hlýjast norðaustantil. Lægðarmiðjunni er spáð á norðurleið skammt fyrir vestan land.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag:
Sunnan 3-10 m/s og víða rigning, en stöku skúrir norðaustanlands. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast norðaustantil.
Á föstudag:
Suðvestan 5-13 og skúrir, en léttir til austanlands. Hiti 7 til 13 stig, hlýjast eystra. Ört vaxandi norðanátt um landið norðvestan- og norðanvert um kvöldið með rigningu eða slyddu og kólnar.
Á laugardag:
Norðan og norðvestan 8-15. Rigning eða slydda á norðanverðu landinu, en þurrt sunnantil. Hiti 2 til 12 stig, mildast suðaustanlands. Lægir og styttir upp um kvöldið.
Á sunnudag:
Vaxandi suðaustanátt með rigningu, en þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 6 til 12 stig.
Á mánudag:
Breytileg átt og rigning víða um land. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir norðanátt með rigningu og svölu veðri á norðanverðu landinu, en þurrt sunnanlands og mildara.