Íbúar víðast hvar á landinu gætu fengið verri hugmyndir í dag en að draga fram vatnsheld föt því það rignir líklega alls staðar nema á Norðaustur- og Austurlandi. Þar má fólk búast við allt að sextán stiga hita.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Suðlæg átt í dag, yfirleitt á bilinu 5-13 metrar á sekúndu. Dálítil rigning eða súld, en bætir í úrkomu síðdegis. Að mestu þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Sunnan 3-10 á morgun og víða vætusamt, einkum þó um landið sunnan- og vestanvert. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast norðaustantil.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu til miðnættis annað kvöld:
Fremur hæg sunnanátt og dálítil súld. Rigning með köflum seint í dag og snýst í suðaustan 5-10 m/s í kvöld. Sunnan og suðvestan 3-8 á morgun og vætusamt. Hiti 9 til 12 stig.