Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað innflutningsbann við ákveðnum vörum frá Kanada og tollahækkanir á aðrar.
Þetta er samkvæmt forsetatilskipun sem hann undirritaði í Hvíta húsinu í gær. 50% tollar verða lagðir á fjölmargar kanadískar vörur frá 15. september, líkt og rúmdýnur, vélbáta og gólfbíla.
Þá verður lagt innflutningsbann á nokkrar tegundir áfengra drykkja og mjólkurvara, svo sem mysu, og tekur bannið gildi 29. september næstkomandi.
Þessar aðgerðir eru mótsvar Bandaríkjastjórnar við tollum sem yfirvöld í Kanada tilkynntu um fyrir rúmum tveimur vikum og tóku gildi í gær.
Kanadísk yfirvöld lögðu tollana á bandarískar vörur eftir að Bandaríkjastjórn tilkynnti 50% toll á kanadískar vörur 22. ágúst sl.
AFP fréttaveitan hefur eftir ónafngreindum háttsettum bandarískum embættismanni að stjórnvöld í Kanada hafi verið vöruð við því að tollar þeirra myndu leiða til stigmögnunar á tollastríðinu.
Sem réttlætingu á innflutningsbanni á áfengi í Kanada vísaði Trump til þess sem hann kallaði mismunun gegn bandarísku áfengi. Frá því að Bandaríkjaforseti jók tolla á kanadískar vörur á síðasta ári hafa kanadískir neytendur sniðgengið bandarískar vörur. Bandarískt vín og sterkt áfengi er horfið úr hillum verslana í flestum kanadískum héruðum sem voru með einokun á sölu þeirra.