Pilturinn var að mótmæla í bænum Lens, sem er í norðurhluta Frakklands, að sögn Francois-Xavier Lauch, héraðsstjóra Pas-de-Calais. Á milli 150 og tvö hundruð mótmælendur hófu að kasta hlutum í lögregluna þegar óeirðalögreglan skarst í leikinn.
Ekki er víst hvort að hvellsprengja lögreglu hafi átt í hlut samkvæmt umfjöllun The Guardian. Lauch staðfesti að rannsókn á atvikinu væri hafin. Fjölskylda sextán ára nemanda í Tours, um tvö hundruð kílómetra austur af Nantes, hefur lagt fram kæru vegna lögregluofbeldis eftir að nemandinn missti sjón á hægra auga. Saksóknari sagði áverkana samræmast höggi frá gúmmíkúlu lögreglu.
Mótmælin hófust í lok september en á síðustu vikum hafa þau snúist út í óeirðir. Nemendur tóku að mótmæla vegna lélegra námsskilyrða, svo sem undirmönnunar kennara, yfirfullra kennslustofa og skólabygginga í niðurníðslu. Hundruðum skóla var lokað á mánudag eða stóð kennsla yfir í fjarkennslu vegna mótmælanna. Gert er ráð fyrir því að þúsundir muni taka þátt í mótmælunum í dag.
Háskólanemar hafa einnig gengið til liðs við framhaldsskólanemana og var allt að fjörutíu háskólabyggingum lokað í gær.
Taka á helstu kröfunum
Sébastien Lecournu, forsætisráðherra Frakklands, hefur falið ráðherrum sínum að taka á fimm helstu kröfum nemendanna. Meðal þeirra er að skipuleggja afleysingar fjarverandi kennara en á sumum stöðum hafa nemendur misst úr kennslu mánuðum saman vegna fjarverandi kennara.
Ríkisstjórnin mun einnig skoða viðgerðir á niðurníddum skólabyggingum og endurskoða lengd skóladags Frakka sem er með þeim lengstu í Evrópu. Sumar bygginganna eru ansi illa farnar og lýsa nemendurnir vatnsleka í kennslustofum, kakkalökkum og óbærilegum hita á sumrin.
Yfir fimm þúsund manns, flestir unglingar, hafa verið handteknir í mótmælunum víðs vegar um Frakkland.