Daniela Klette, meðlimur Baader-Meinhof gengisins, hefur verið dæmd í 13 ára fangelsi. Klette var á flótta í um 30 ár.
Breska ríkissjónvarpið BBC greinir frá þessu.
Klette var handsömuð í íbúð í Berlín árið 2024 eftir að hafa verið eftirlýst í um 30 ár. Klette var grunuð um að taka þátt í vopnuðum ránum á vegum Baader-Meinhof gengisins, eða RAF samtakanna eins og þau eru einnig kölluð, um áratuga skeið. Það síðasta árið 2016.
Handtaka Klette kom skömmu eftir að sjónvarpsþátturinn Aktenzeichen XY var sýndur í þýsku sjónvarpi. Í honum var fjallað um Baader-Meinhof, hin kommúnísku hryðjuverkasamtök, og fólk beðið um að hafa augun opin fyrir meðlimum sem væru enn þá á flótta undan réttvísinni. Lögreglunni barst fjöldi ábendinga um Klette sem leiddi á endanum til handtöku hennar.
Gæti átt fleiri dóma yfir höfði sér
Samtökin voru stofnuð árið 1970 og hafa framið ótal morð, mannrán, skemmdarverk, rán og árásir. Klette, sem er 67 ára, tilheyrir þriðju kynslóð samtakanna.
Sjá einnig:
Daniela Klette handtekin í Berlín – Var eftirlýst í yfir 20 ár
Klette hlaut 13 ára fangelsisdóm fyrir aðild að vopnuðum ránum og morðhótunum á árunum 1999 til 2016, meðal annars í Duisburg og Braunschweig. Hún var ekki dæmd fyrir hryðjuverk eins og búist var við. Hún gæti þó enn þá átt fleiri dóma yfir höfði sér.
Á sér aðdáendur
Klette viðurkenndi ekki að vera meðlimur í Baader Meinhof genginu. Hún sagðist einnig ekki hafa verið á flótta eða falið hver hún væri, jafn vel þó hún hefði verið þekkt sem Claudia í áraraðir.
Lögreglan fann vopn, skotfæri, hárkollur, fölsuð skilríki, gull og stórar peningaupphæðir við handtökuna.
Þrátt fyrir að hafa tekið þátt stórhættulegum glæpum þá virðist Klette eiga sér aðdáendur. Fyrir utan dómshúsið stóðu stuðningsmenn hennar og hrópuðu: „Frelsi fyrir Danielu!“