Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur skipað Magnús Kristjánsson forstjóra Stofnunar atvinnuveganna til fimm ára.
Stofnunin verður til við sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Þá færast verkefni á sviði matvælaeftirlits heilbrigðisnefnda sveitarfélaga einnig til hennar. Stofnunin tekur til starfa 1. janúar 2027.
Alls sóttu tólf um embættið en þriggja manna hæfnisnefnd lagði mat á umsækjendur. Magnús mun leiða undirbúning að starfsemi stofnunarinnar, móta skipulag hennar og stýra henni.
Magnús er með B.Sc.-gráðu í tölvunarfræði og MBA-próf frá Háskóla Íslands. Hann var forstjóri Orkusölunnar frá 2008 til 2026 en starfaði áður meðal annars hjá Rarik og TM Software. Hann hefur jafnframt gegnt fjölmörgum stjórnarstörfum, meðal annars hjá Samorku, Sunnlenskri orku og Sjávarorku, auk setu í fulltrúaráði Samtaka atvinnulífsins.
Umsækjendur um embætti forstjóra Stofnunar atvinnuveganna í stafrófsröð:
- Auður Ýr Sveinsdóttir, ráðgjafi
- Ásmundur E. Þorkelsson, framkvæmdastjóri
- Egill Þorri Steingrímsson, sviðstjóri
- Gísli Gíslason, ráðgjafi
- Gísli Rafn Ólafsson, framkvæmdastjóri og fyrrum þingmaður Pírata
- Halla María Sveinbjörnsdóttir, lögfræðingur
- Hans Guttormur Þormar, framkvæmda- og verkefnastjóri
- Hrönn Jörundsdóttir, forstjóri
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, hjúkrunarfræðingur
- Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri
- Kjartan Örn Sigurðsson, fv. forstjóri
- Magnús Kristjánsson, fv. forstjóri
- Þorgeir Pálsson, stjórnunarráðgjafi og fv. oddviti og sveitarstjóri