Maður fannst látinn við Háafoss

Maðurinn sem þyrla Landhelgisgæslunnar sótti við Háafoss í Þjórsárdal í kvöld reyndist látinn þegar að honum var komið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi en RÚV fjallaði um málið.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var maðurinn fluttur með þyrlu á Selfoss. Rannsókn á atvikinu er í höndum lögreglunnar á Suðurlandi.
Útkall barst fyrr um kvöldið vegna meðvitundarlauss einstaklings við fossinn og var viðbragðsaðilum þegar í stað gert viðvart með hæsta forgangi.
Fyrr í vikunni stóð yfir leit að erlendum ferðamanni sem ekki skilaði sér á gististað, en lögregla vill ekki staðfesta hvort um sama einstakling sé að ræða. Ekki hafa verið veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.