Fjögur kynferðisbrot eru til rannsóknar eftir útihátíðir um helgina.
Lögreglan á Suðurlandi rannsakar þrjú kynferðisbrot tengd bæjarhátíðinni Kótilettunni á Selfossi aðfaranótt sunnudags og lögreglan á Norðurlandi vestra rannsakar eitt mál á Landsmóti hestamanna á Hólum í Hjaltadal.
Þetta kemur Drífu Snædal talskonu Stígamóta ekki á óvart.
„Það er alltaf hrikalega svekkjandi þegar svona mál koma upp en því miður ekki óvænt. Við höfum hins vegar orðið vör við það hjá Stígamótum að það er algengara að þolendur leiti aðstoðar seinna. Það má því leiða að því líkum að það séu fleiri kynferðisbrot en komast í fréttirnar, því miður,“ sagði Drífa í þættinum Fram undan á Rás 2.
Eitt sinn hafi þessi mál helst verið tengd við verslunarmannahelgina en það sé breytt.
„Það er svo ofboðslega mikið af hátíðum og skemmtunum yfir sumarið og því miður virðist þetta vera fylgifiskur þeirra þegar ekki er rétt haldið á spöðunum.“
Stígamót halda ekki tölur yfir hvenær á árinu kynferðisbrot eru framin en ráðgjafar verða þess varir að þau séu orðin dreifðari yfir sumarið.
Hátíðahaldarar þurfa að gangast við ábyrgð sinni
Drífa segir að þessi mál veki ávallt spurningar um öryggi, viðbrögð og stuðning við þolendur. Hátíðahaldarar verði að gangast við ábyrgð sinni.
„Við höfum til dæmis veitt fræðslu fyrir hátíðahaldara sem hafa leitað til okkar. Best er alltaf að vera með góðar forvarnir. Þá skiptir máli að það sé sýnilegt gestum og starfsfólki að hér ætli allir að skemmta sér fallega og það séu viðbrögð við því ef einhver verður var við óeðlileg samskipti. Bæði að gestir passi upp á hver annan og sjálfa sig og líka að gæslufólk sé meðvitað um vísbendingar um óeðlileg samskipti og hafi skýrar verklagsreglur að grípa til.“
Drífa segir að það skipti miklu máli að þau sem sinni gæslu á þessum hátíðum hafi tæki og tól og einnig sjálfstraust til að grípa inn í. „Vera óþægileg ef svo ber undir og setja öryggi gesta í öndvegi.“
Forvarnir og sýnileg stefna skipti öllu máli.
Ekki aðeins að hafa áhyggjur af yngra fólkinu
Mikið hefur verið rætt um aukna áfengisneyslu ungmenna. Drífa segist ekki hafa orðið vör við það. „Það er tilefni til að hafa ekki bara áhyggjur af yngra fólkinu. Svona fylgir útihátíðum og skemmtunum almennt því miður.“
Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.