Réttarhöldum í Bandaríkjunum yfir Abu Agila Mohammad Kheir Al-Marimi hefur verið frestað aðeins nokkrum dögum áður en þau áttu að hefjast. Þetta er í þriðja sinn sem það gerist en hann er sakaður um að hafa sett saman sprengju sem grandaði þotu bandaríska flugfélagsins Pan Am yfir bænum Lockerbie í Skotlandi árið 1988.
Réttarhöldunum hefur verið frestað fram í janúar því föstudaginn 21. ágúst komu fram ný sönnunargögn.
Verjendur Al-Marimis segja að hvorki þeir né saksóknarar hafi vitað af „nýuppgötvuðu sönnunargögnunum“ og þeim beri skylda til að kynna sér þau og rannsaka. Þetta þýðir að dómur fellur líklega ekki fyrr en næsta vor.
Í nærri fjóra áratugi hafa aðstandendur þeirra sem fórust beðið eftir því að sannleikurinn verði leiddur í ljós. Al-Marimi hefur verið í haldi í Bandaríkjunum síðan 2022 og upphaflega áttu réttarhöldin að hefjast í maí 2025.
Hann neitar að hafa smíðað sprengjuna sem grandaði Pan Am-flugi númer 103 þann 21. desember 1988. Boeing 747-breiðþota flugfélagsins Pan Am var á leiðinni frá Lundúnum til New York þegar hún var sprengd í loft upp.
Alls fórust 270, 190 þeirra voru bandarískir ríkisborgarar. Ellefu fórust á jörðu niðri þegar logandi flak þotunnar féll til jarðar. Þetta er mannskæðasta hryðjuverkaárás sem gerð hefur verið í Bretlandi.