AVROTROS, hollenska sjónvarpsstöðin sem hefur séð um þátttöku í Eurovision síðustu ár, ætlar að sniðganga keppnina á næsta ári. Holland var ekki með í keppninni í ár og nú er ákvörðun um þátttöku á næsta ári komin á borð NPO sem eru yfirsamtök hollenskra ríkismiðla.
AVROTROS tilkynnti í morgun að það ætli ekki að taka þátt í Eurovision á næsta ári. Stjórnendur segja að keppnin geti ekki lengur talist hlutlaus vegna viðbragða við stríðinu á Gaza.
„Átök á alþjóðavettvangi hafa óneitanlega haft áhrif á keppnina og grafið undan hlutleysi hennar. Eurovision er orðin vettvangur sundrungar,“ segir Taco Zimmerman framkvæmdastjóri.
Holland var á meðal fimm ríkja sem sniðgengu keppnina í ár. Hin fjögur eru Ísland, Írland, Spánn og Slóvenía.
Í tilkynningu segir að ákvörðun um þátttöku á næsta ári sé nú í höndum NPO (Nederlandse Publieke Omroep) sem eru regnhlífarsamtök hollenskra ríkismiðla.
Áhorfendum Eurovision fækkaði á milli ára. Í ár horfðu 131 milljón á keppnina sem er 35 milljónum færri en árið 2025. Fyrr í þessum mánuði tilkynntu skipuleggjendur Eurovision að þjóðir sem heyja stríð fái ekki að halda keppnina.
Keppnin verður haldin í borginni Burgas í Búlgaríu dagana 12. til 15. maí á næsta ári. Söngkonan Dara vann keppnina fyrir Búlgaríu í vor með laginu Bangaranga. Þetta er í fyrsta skipti sem Búlgaría sigrar og hýsir keppnina.
Fréttin og fyrirsögnin hafa verið uppfærð. Fleiri en ein sjónvarpsstöð eru undir hatti hollenskra ríkismiðla en ein þeirra AVROTROS, sem hefur síðustu ár sent inn framlög í Eurovision, hefur ákveðið að sniðganga keppnina.