Lögreglan á Suðurlandi leitar að vitnum að líkamsárás sem framin var á fjölskyldu-, tónlistar- og grillhátíðinni Kótilettunni, á Selfossi, þann 11. júlí síðastliðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem óskað er eftir vitnum eða einhverjum sem kunna að hafa vitneskju um árásina sem framin var fyrir framan sviðið á hátíðarsvæðinu milli kl. 02:23 og 02:26 aðfaranótt 11. júlí.Þeir sem geta gefið upplýsingar um árásina eru vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóst á netfangið sudurland@logreglan.is.
Leita að vitnum vegna líkamsárásar á Selfossi