Íranar segjast hafa skotið viðvörunarskotum að tveimur flutningaskipum sem reyndu að komast yfir Hormússund í morgun. Íranar höfðu í gær lýst yfir lokun sundsins. Lengi vel hafði ekkert skip farið yfir sundið frá því í gærkvöld en minnst tvö skip virðast nú hafa farið þarna um.
Þetta er enn ein birtingarmyndin af stigmögnun sem hefur átt sér stað í stríði Bandaríkjanna og Írana. Íranski ríkisfjölmiðillinn segir Bandaríkin hafa gert nýjar árásir í morgun. Einn var drepinn og sjö særðir í árás á herstöð í Nain og tveir voru drepnir og þrír særðir í borginni Abadan í suðvesturhluta landsins en þar er mikil olíuframleiðsla. Bandaríkjamenn hafa ekki staðfest þessar fregnir.
Bandaríkin, Frakkland og Þýskaland fordæmdu árásir Írana á Hormússundi í sameiginlegri yfirlýsingu í morgun. Þjóðirnar krefjast þess að umferð verði hleypt um sundið.