Innflutningur skotvopna til Íslands er háður leyfi lögreglu samkvæmt vopnalögum. Við tollafgreiðslu er gengið úr skugga um að nauðsynleg leyfi liggi fyrir áður en skotvopn er afhent úr tolli.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari tollayfirvalda við fyrirspurn mbl.is er snéri að reglum um innflutning skotvopna og hvort sérreglur gildi um innflutning á vegum ráðuneytis eða ríkisins.
Skammbyssa Kristrúnar
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fékk skammbyssu að gjöf frá Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta á leiðtogafundi NATO í Ankara í Tyrklandi en leiðtogar NATO-ríkjanna fengu allir sambærilegar gjafir.
mbl.is spurði tollayfirvöld m.a. að því hvort forsætisráðherra hefði getað flutt vopnið inn hefði hún gilt skotvopnaleyfi og hvort það hefði lagalega þýðingu að byssan yrði gerð óvirk fyrir innflutning.
Í svari tollayfirvalda segir að mögulegar undanþágur frá leyfisskyldu, áhrif diplómatísks flutnings eða hvernig vopnalög eigi við í tilteknu máli heyri ekki undir verksvið Skattsins (tollayfirvalda).