Hræðsluáróður og ýktar yfirlýsingar í aðdraganda kosninga
Óðinn Freyr Baldursson er formaður Ungra Evrópusinna og Halldór Ísak Ólafsson er stjórnarmeðlimur UNG gegn ESB. Þótt þeir séu á öndverðum meiði í afstöðu sinni sammælast þeir um tvennt: Að vinna þurfi bug á upplýsingaóreiðu í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna og að svo lengi sem fólk tekur upplýsta ákvörðun þá hafi allir unnið.
Óðinn Freyr Baldursson, formaður Ungra Evrópusinna, og Halldór Ísak Ólafsson, formaður Roða og stjórnarmeðlimur UNG gegn ESB, sammælast um að upplýsingaóreiða ríki í umræðum meðal ungmenna um Evrópusambandið og komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Hér bera þeir saman bækur sínar um birtingarmyndir upplýsingaóreiðunnar, hvernig best sé að vinna gegn henni og þátttöku ungmenna í almennum umræðum.
Kemur úr báðum áttum
Óðinn Freyr tók á móti verðlaunum Uppreisnar fyrir hönd Ungra Evrópusinna í síðasta mánuði. Samkvæmt frétt Uppreisnar hlutu þau verðlaunin fyrir „að skara fram úr í að sporna gegn upplýsingaóreiðu og stuðla að upplýstri og málefnalegri umræðu um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu og aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið“.
Aðspurður um helstu birtingarmyndir upplýsingaóreiðunnar telur Óðinn Freyr hana felast í hræðsluáróðri og ýktum yfirlýsingum frá hlynntum sem og andvígum.
„Helsta birtingarmynd upplýsingaóreiðu hefur einkennst af miklum hræðsluáróðri en einnig mikið af ýktum yfirlýsingum
„Helsta birtingarmynd upplýsingaóreiðu upp á síðkastið hefur einkennst af miklum hræðsluáróðri en einnig mikið …