Hagsmunasamtök kvikmyndaveranna (Motion Picture Association) í Hollywood hafa náð samkomulagi við kínverska fyrirtækið ByteDance um leiðir til að verja höfundarréttarvarið efni. Samtökin kröfðust þess fyrr á árinu að ByteDance hætti að brjóta á höfundarrétti.
ByteDance er kínverskt tæknifyrirtæki sem stendur meðal annars að baki TikTok og spunagreindinni Seedance.
Þegar Seedance 2.0 var gefin út í febrúar fór að birtast mikill fjöldi myndskeiða sem unnin eru með forritinu og byggja á höfundarréttarvörðu efni, eins og Hringadróttinssögu Peters Jacksons. Stéttarfélag leikara í Bandaríkjunum fordæmdi einnig höfundarréttarbrotin.
Hagsmunasamtök kvikmyndaveranna og ByteDance greindu frá því í dag að þau væru búin að þróa ramma til að vernda hugverkaréttindi kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðarins í spunagreindarvörum ByteDance; Seedance og Seedream.
Spunagreindirnar eru meðal annars aðgengilegar í gegnum TikTok-símaforritið. Nýju útgáfur þeirra taka þegar mið af þeim vörnum sem ByteDance hefur þróað í samstarfi við Hagsmunasamtök kvikmyndaveranna.
Samtökin segja samkomulagið mikilvægt skref í að tryggja höfundarrétt á tímum spunagreindar.
„Þetta samkomulag er til merkis um þá trú okkar að höfundarréttur sé hornsteinn kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðarins,“ er haft eftir Charles Rivkin, framkvæmdastjóra samtakanna, í tilkynningu.
„Við höfum síðustu mánuði átt í góðu samstarfi við ByteDance um innleiðingu mikilvægra varna innan Seedance og Seedream. Þetta samkomulag sýnir fram á vilja beggja aðila til að halda þeirri vinnu áfram og styrkja þessar varnir enn frekar.“