Hildur borgarstjóri í samstarfi með Framsókn og Viðreisn
Hildur Björnsdóttir, Björg Magnúsdóttir og Einar Þorsteinsson hafa gert með sér samkomulag um myndun meirihluta í Reykjavík. Meirihlutinn var kynntur í Viðey ellefu dögum eftir borgarstjórnarkosningarnar.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, verður borgarstjóri í Reykjavík í meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks.
Á mánudag gengu flokkarnir til viðræðna um myndun meirihluta við Viðreisn og Framsókn án þess að tilkynna um það opinberlega. Viðræðurnar tóku skamman tíma.
„Þetta er sá meirihluti sem ég tel bestan fyrir Reykjavík,“ sagði Hildur þegar hún kynnti niðurstöðuna. Það ríkti traust á milli þessara leiðtoga og þau væru sammála um að gera þyrfti breytingar í borginni.
Einar verður formaður borgarráðs fyrri hluta kjörtímabils á sama tíma og Björg verður forseti borgarstjórnar. Þau munu hafa stólaskipti á miðju kjörtímabili. Hildur segist ætla að gera það að tillögu sinni að Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, verði gerður að stjórnarformanni Orkuveitunnar.
Segjast vera ný kynslóð
Öll sögðust oddvitarnir vera hluti af nýrri kynslóð stjórnmálafólks og að traust ríkti á milli þeirra. „Við erum fólk á svipaðri línu, við getum talað heiðarlega og hreinskiptið saman,“ sagði Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, á fundinum og sagði að borgarfulltrúar meirihlutans væri öflugur og fjölbreyttur hópur sem gæti ekki beðið eftir að hefja vinnuna. „Við göngum inn í þetta ofboðslega spennt.“
„Fólk vill nýtt upphaf í Reykjavík,“ sagði Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokks, og sagðist hafa reynt að mynda þennan meirihluta á síðasta kjörtímabili. Vísaði hann til þess þegar hann sprengdi meirihlutasamstarfið sem hann leiddi sem borgarstjóri, sem endaði þó með því að vinstri flokkarnir í borgarstjórn mynduðu meirihluta án Framsóknar.
Þrír en ekki tveir
Hildur valdi að ganga til meirihlutasamstarfs með Björgu og Einari. Meirihlutinn var kynntur á blaðamannafundi í Viðey í dag, þar sem oddvitarnir skrifuðu undir meirihlutasamstarfið. Hún hafði einnig kost á að leiða tveggja flokka samstarf Sjálfstæðisflokks og Miðflokks, sem hefði haft jafn marga fulltrúa á bak við sig.
Flokkarnir hafa samtals 12 fulltrúa af 23 í borgarstjórn og rétt rúmlega meirihluta gildra atkvæða á bak við sig. Sjálfstæðisflokkur er stærstur með 9 fulltrúa og 32,9 prósent atkvæða, Viðreisn með 2 fulltrúa og 10,7 prósent atkvæða og Framsókn með 1 fulltrúa og 6,9 prósent atkvæða. Samtals hafa flokkarnir 35.171 atkvæði á bak við sig.