Móðir á besta aldri vann hæsta vinning Happdrættis Háskólans í dag. Verðlaunin eru hvorki meira né minna en sjö milljónir króna skattfrjálst.
Fram kemur í tilkynningu HHÍ að tveir aðrir heppnir hafi unnið eina milljón hvor.
Milljónaveltan fór ekki út og því bætast við 15 milljónir í pottinn. Það þýðir að einn heppinn miðaeigandi getur unnið 30 milljónir króna í drættinum í ágúst. Í heildina deildu tæplega 3700 miðaeigendur vinningi upp á 160 milljónir króna.