„Ég er sorgmæddur. Ég taldi að við værum komin lengra, værum umburðarlyndari, opnari og umfram allt kærleiksríkari,“ segir Héðinn Unnsteinsson, fyrrverandi formaður Geðhjálpar, í færslu á Facebook-síðu sinni.
Héðinn, sem hefur verið ötull talsmaður geðheilbrigðismála í gegnum árin, bregst þar við fréttum þess efnis að Geðhjálp telji sig nauðbeygð að setja húsnæði sem hugsað var sem athvarf fyrir fólk sem glímir við andlegar áskoranir, aftur í sölu.
RÚV greindi meðal annars frá þessu í gær, en ástæðan ku vera sú að íbúar í nágrenninu mótmæltu því hástöfum að fá starfsemina í hverfið. Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, sagði við RÚV að umhugsunarvert væri hversu ríkir fordómar séu gagnvart geðrænum veikindum í samfélaginu.
Á fundi íbúa og Geðhjálpar munu hafa fallið stór orð þar sem íbúar töldu meðal annars að ógn gæti stafað af gestum, fasteignaverð myndi lækka og að öryggi barna væri í hættu.
Héðinn segist í færslu sinni vera á því að skoðanir og afstaða þessara nágranna hljóti að grundvallast á ekki nægilega vel upplýstum forsendum.
„Hvet Geðhjálp og viðkomandi nágranna að ná farsælli lendingu. Við erum stærri en þetta,“ segir hann og er óhætt að segja að margir taki undir með honum í athugasemdum.
„Já dapurt,“ segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason. „Það er ég líka,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, og tekur undir með Héðni að hún sé döpur vegna málsins.
„Ég er ótrúlega sorgmædd. Man eftir umræðunni um Vernd sem er staðsett í mínu hverfi og sem betur fer var ekki sú starfsemi hrakin í burtu og allt verið blessað,“ segir Jóna Hrönn Bolladóttir prestur í athugasemd sinni.