Útlit er fyrir hægviðri næstu daga með dálítilli vætu hér og þar í flestum landshlutum. Þessu veldur hæðasvæði sem hreiðrar um sig yfir landinu á morgun og fram yfir helgi.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og víða dálítil rigning eða súld norðan- og austanlands fram undir kvöld, en skýjað með köflum og stöku skúrir sunnan- og vestanlands, einkum síðdegis. Vestlæg eða breytileg átt, þrír til átta metrar á sekúndu á morgun, skýjað með köflum og skúrir á víð og dreif, en úrkomulítið suðvestanlands. Hiti sjö til fjórtán stig, mildast syðra.