Svo virðist sem allir og amma þeirra hafi verið á BERGMÁL-tónleikunum á Þingvöllum um helgina, það á þó ekki við um Guðna Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseta Íslands, sem var á öðrum tónleikum á þeim tíma á ekki síður áhugaverðum stað.„Á Þingvöllum voru fínustu tónleikar en þeir voru ekki síðri á Ísafirði. Tónlistarhátíð Við Djúpið er haldin hvert sumar og naut ég hennar undanfarna daga samhliða störfum á Hrafnseyri við Arnarfjörð, þeim fallega fæðingarstað Jóns forseta sem ég hvet Íslendinga til að heimsækja,“ segir Guðni Th. á Facebook.
Guðni Th. var ekki á Þingvöllum heldur öðrum tónleikum á áhugaverðum stað – Sjáðu myndbandið