Staðan á bráðamóttöku Landspítala hefur verið í deiglunni í langan tíma, nú á að létta af álaginu með nýrri bráðamatsdeild sem á að opna í gámabyggð á bílastæði Landspítalans í Fossvogi í september. Nýtt myndband á vegum samskiptadeildar spítalans sýnir inn í þessa gáma en margir sem hafa átt leið hjá spítalanum síðustu vikur hafa verið forvitnir hvað er þar inni.
Sjáðu inn í nýju gámana við bráðamóttöku Landspítalans – „Mér finnst þetta koma á óvart“