Rafmagni hefur verið komið aftur á í Grindavík eftir útleysingu í gær. Rafmagnslaust varð á hluta Suðurnesja sídegis í gær eftir að þrjár háspennulínur Landsnets leystu út. Það voru Svartsengislínur 1 og 2 auk Njarðvíkurlínu.
Í tilkynningu Landsnets í morgun segir að varaaflsvélum hafi verið komið fyrir í Grindavík og rafmagn komið aftur á.