Fyrsti þáttur af Líflandsstofu EiðfaxaTV kom út í gær.
Í þáttunum verða dagar Landsmóts hestamanna sem fram fer í Skagafirði í ár gerðir upp og teknir saman. Umsjónarmenn þáttarins eru þeir Arnar Bjarki Sigurðsson og Hjörvar Ágústsson ásamt Huldu G. Geirsdóttur og Sigrúnu Högna Tómasdóttur.
Í gærkvöldi ræddi Arnar við fólk sem hafði sýnt kynbótahross á mótinu og sýndi meðal annars efstu hryssurnar á mótinu. Hjörvar fékk einnig til sín efstu keppendur eftir sérstaka forkeppni og ræddi árangur dagsins.
Hægt verður að nálgast alla þætti Líflandsstofunnar og fleiri upplýsingar varðandi Landsmót hestamanna á vefsíðu Eiðfaxa