Friðarsinni dæmdur fyrir að „grafa undan“ hernaði
Lev Shlosberg er enn einn stjórnarandstæðingurinn sem tekinn er úr umferð í Rússlandi Pútíns.
Rússneskur dómstóll dæmdi í dag þekktan stjórnarandstæðing, Lev Shlosberg, í 11 ára fangelsi fyrir gagnrýni hans á innrás Moskvu í Úkraínu.
Shlosberg, sem er 63 ára gamall, er einn fárra andstæðinga stjórnarinnar í Kreml sem var enn í Rússlandi eftir að stjórnvöld hófu umfangsmiklar aðgerðir gegn andófsmönnum í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu árið 2022.
Dómstóllinn í Pskov í norðvesturhluta Rússlands sakfelldi varaformann Yabloko-flokksins fyrir „opinberar aðgerðir sem miða að því að grafa undan notkun hersveita Rússneska sambandsríkisins“ og dæmdi hann í „11 ára og eins mánaðar fangelsi“.
Þegar dómarinn spurði Shlosberg hvort hann skildi dóminn sagði hann: „Ég vorkenni yður, háttvirti dómari, þér verðið að lifa með þessu.“
Leiðtogar Yabloko, Nikolay Rybakov og Grigory Yavlinsky, kölluðu dóminn „harmleik hnignunar nútíma rússnesks réttarkerfis“ og sögðu að flokkurinn myndi beita öllum löglegum leiðum til að binda enda á saksóknina gegn Shlosberg.
Í síðustu viku var Yabloko, eina starfandi stjórnmálaflokki Rússlands sem …