Nýr Landspítali ohf. gekk til samninga við GV gröfur á Akureyri um jarðvegsvinnu vegna stækkunar sjúkrahússins á Akureyri. Reiknað er með að framkvæmdir hefjist strax í júní en Akureyrarbær hefur þegar gefið út byggingarleyfið. Fyrsti áfangi framkvæmdanna er jarðvegsvinna sem GV gröfur framkvæma fyrir 57% af kostnaðaráætlun, eða 485 m.kr.
Framkvæmdirnar sem ráðist verður í eru nýjar lyf- og skurðlækningadeildir og nýjar legu-, göngu- og dagdeildir fyrir geðþjónustu auk ýmiss konar stoðþjónustueiningar. Nýbyggingarnar eru í lokahönnun en gert er ráð fyrir að þær verði 13.500 m2 og einnig þarf að leggja nýja götu og gera nýtt bílastæði. Tvö tilboð bárust í verkið.
Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH ohf., segir að gert sé ráð fyrir einhverri röskun vegna framkvæmdanna en það verði tekið fullt tillit til starfsemi og umhverfismála. Sett verði upp dekkjaþvottastöð þannig að vörubílar fari hreinir út á götur bæjarins.
Stækkun sjúkrahússins á Akureyri er langþráð verkefni og verðmætt segir Erla Björnsdóttir, settur forstjóri SAk. Sökum húsnæðisvanda sjúkrahússins bæði á Akureyri og í Eyjafjarðarsveit hefur einhver röskun orðið á starfseminni. Dagþjónusta geðdeildarinnar hefur flutt tímabundið í miðbæinn á Akureyri og bagalegt ástand er á eignum sjúkrahússins á Kristnesi sökum myglu.