Sjómannafélag Íslands (SÍ) hefur boðað ótímabundið verkfall bátsmanna og háseta á skipum Eimskips og Faroe Ship, Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi, ef samningar nást ekki fyrir þann tíma. Að sögn Jónasar Garðarssonar, formanns samninganefndar SÍ, hefur ríkissáttasemjari ekki boðað fund enn þá en verkfallsaðgerðir eiga að hefjast mánudaginn næsta, 25. maí, kl. 12.
„Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað fund í þessu máli en við erum með annað verkfall út af hafnarverkamönnum og þar erum við með fund næsta fimmtudag,“ segir Jónas í samtali við mbl.is.
SÍ hafði áður boðað tímabundið verkfall frá 12.-15. apríl en félagið þurfti að hverfa frá þeim áformum. „Þeir vildu meina að það hefði verið ólöglega boðað því við höfðum ekki farið til ríkissáttasemjara,“ segir Jónas jafnframt.
„Frá 2011 hefur Eimskipafélagið samt sagst vera útlent og allar kjaraviðræður hafa farið beint fram við þá án aðkomu ríkissáttasemjara. En núna sneru þeir við blaðinu.“
Útvistun starfa til annarra landa vandamál
Jónas spyrðir þessa kjarabaráttu raunar við mál Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) sem eiga í kjaraviðræðum við Icelandair. Það mál rekur FÍA meðal annars til útvistunar flugfélagsins á verkefnum til landa þar sem laun eru lægri en hér á landi, til að mynda Möltu.
„Við erum í nákvæmlega sömu stöðu,“ útskýrir Jónas. „Hér er búið að vera að eyða íslenskri farmannastétt með því að vera með útlend skip, eða erlent vinnuafl, sem er á miklu lægri launum en við. Eini munurinn á okkur og FÍA er að við erum búnir að standa í þessu í 30 ár en þeir eru rétt að byrja.“
