Tvíbókun hefur orðið á sumum færslum á greiðslukortum viðskiptavina Arion banka og Landsbanka.
Þetta kemur fram í tilkynningum frá bönkunum.
Í tilkynningu á vef Landsbankans segir að þetta einskorðist við innlendar færslur og að unnið sé að leiðréttingu.
„Í einhverjum tilvikum geta viðskiptavinir lent í að eiga ekki heimild á kortunum sínum vegna tvíbókana. Við bendum á að í Landsbankaappinu er hægt að hækka heimild á kreditkortum tímabundið í sjálfsafgreiðslu,“ segir enn fremur.
Villa í kerfum Rapyd
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu má rekja þetta til villu í kerfum Rapyd á Íslandi sem sinna færsluhirslu fyrir greiðslukort bankanna.
Kristín Gunnarsdóttir, forstöðumaður upplýsingamiðlunar Landsbankans, segir að Rapyd vinni að lausn og að enginn þurfi að örvænta vegna tvíbókananna.
„Það eru allir að vinna hörðum höndum að því að græja þetta,“ segir hún.
Í tilkynningu frá Arion banka segir að færslur frá því í gær, 30. júlí, hafi birst tvisvar. „Unnið er að leiðréttingu í samstarfi við Rapyd.“
Þar geta þær einnig haft áhrif á ráðstöfun á greiðslukortum. Fólki er bent á að hægt sé að hækka heimildir í Arion appinu og netbanka.
Haraldur Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi Arion banka, segir að einhverjir viðskiptavinir hafi haft samband vegna tvíbókaðra færslna.
Fréttastofa hefur ekki náð í forsvarsmenn Rapyd.