Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fékk skammbyssu að gjöf frá Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem var haldinn í Ankara. Nafn hennar er greypt á hana.
Þetta staðfestir Ólafur Kjaran Árnason, aðstoðarmaður hennar, við fréttastofu.
Gjöfin hefur verið send í sendiráð Tyrklands gagnvart Íslandi sem staðsett er í Osló. Byssan verður gerð óvirk.
Allir þjóðarleiðtogar sem sóttu fundinn fengu sambærilegar gjafir.