Framkvæmdir við endurbyggingu Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði eru langt komnar. Mikið foktjón varð á safninu 2022 þegar tveir braggar gjöreyðilögðust. Nú rísa braggar í þeirra stað.
Safnið hefur verið starfrækt frá 1995. Þar má fræðast um hersetu Breta og Bandaríkjamanna á Íslandi í seinni heimsstyrjöldinni en ein þeirra aðalbækistöð var á Reyðarfirði.
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður safnsins og menningarstofu Fjarðabyggðar, segir safnið hafa verið með sýningar allt frá stofnun en sýningin hafi fram til þessa staðið óbreytt.
„Þess vegna var einstakt tækifæri við tjónið að endurhugsa og endurhanna nýjar sýningar út frá þessum safnkosti sem við eigum,“ segir Þórhildur.
„Þetta er búið að ganga mjög hratt fyrir sig og hefur verið sameinað átak hjá okkur í Fjarðabyggð og bæjarstjórn.“
Á morgun verður opinn fundur í bragganum sem staðið hefur alla tíð og fá gestir þá innsýn inn í hugmyndavinnuna. Sara Hjördís Blöndal hannar nýju sýninguna.
„Upp á síðkastið hefur vinnan aðallega falist í því að fara yfir safnkostinn og fara í gegnum geymslurnar, sjá hvað er til og púsla þannig saman sýningu,“ segir Sara.
„Það er ótrúlegt að sjá þetta allt að byggjast upp hérna aftur og það verður mjög gaman að hitta fólk á fundinum.“