Vorið var seint á ferðinni austanlands en nú er sumarið skollið á af fullum þunga. Á Egilsstöðum er vinsælt að stökkva út í Eyvindará á góðviðrisdögum en nú er það ekki ráðlegt því áin er mjög straumhörð sökum mikilla leysinga. Hún er líka kaldari en vanalega á þessum árstíma.
„Það er svona stika og varnarskilti þarna en fólk verður að átta sig á því að það er alfarið á eigin ábyrgð. Það er mikilvægt að fólk hafi vit fyrir krökkunum sínum, fylgi þeim og fylgist með þeim því það hefur skollið hurð nærri hælum þarna í ánni. Það er mjög mikilvægt að menn viti hvað þeir eru að gera og fari varlega,“ segir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri í Múlaþingi. Áin er varasöm og Dagmar Ýr ítrekar mikilvægi þess að fara varlega: „Ég ráðlegg fólki alfarið frá því að hoppa í Eyvindarána eins og hún er núna.“
Fjöldi gesta á Héraði
Fjöldi fólks nýtur veðurblíðunnar á Héraði og Dagmar segir að allt hafi gengið vel um helgina. Einhverjir höfðu áhyggjur af vöruskorti á Egilsstöðum eins og 2021 þegar fjöldi Íslendinga sótti í blíðviðrið á Austurlandi en sú er ekki raunin.
„Nei ég hef ekki fengið neinar kvartanir um vöruskort. Ég held að búðirnar séu farnar að búa sig betur undir þetta og læra af reynslunni, því þetta var svolítið erfitt, heita sumarið okkar fyrir nokkrum árum þegar það var erfitt að nálgast brauð og mjólk og aðrar nauðsynjavörur. En menn hafa lært af reynslunni,“ segir Dagmar. Fjölmargir héldu heim í gær eftir helgarfrí en aðrir komu í staðinn. Tjaldsvæðin eru þétt skipuð og áfram er spáð blíðu á Austurlandi.