Egill og Kittý hafa verið saman síðan sumarið 2024 en þekkst síðan þau voru unglingar. Kittý seldi íbúð sína að Hallakri í byrjun síðasta árs og keyptu þau Melhæðina saman síðasta sumar. Egill bjó um árabil í Noregi en sneri aftur til landsins þegar hann tók við stöðu Borgarleikhússtjóra af Brynhildi Guðjónsdóttur í apríl 2025.
Húsið er byggt árið 1992 og er 321,4 fermetrar að stærð. Þá fylgir einbýlishúsinu aukaíbúð í hluta af bílskúr. Húsið er vel staðsett í botnlangagötu á mörkum Garðabæjar og Kópavogs og stutt í bæði Krónuna í Garðabæ, Smáralind, skóla og aðra þjónustu.
Við húsið er pallur og fyrir framan það eru hellulögð bílastæði og bílskúr. Umhverfis húsið er 1.066 fermetra lóð sem er gróðri vaxin og á henni er geymsluskúr. Nýlega er búið að mála húsið að innan sem utan og var þak yfirfarið og málað árið 2026.
Aðalhæðin skiptist í forstofu, áttatíu fermetra stofu með átta metra lofthæð, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi (þar af annað inn af hjónaherbergi), aukaforstofu og þvottaherbergi. Þá er innangengt í stóran bílskúr og búið að breyta helmingi hans í aukaíbúð með sérinngangi. Efri hæðin skiptist svo í sjónvarpsstofu og tvö svefnherbergi.
Nánar má lesa um húsið á fasteignavef Vísis og hægt að sjá myndir hér að neðan: