Cosplay er áhugamál og ákveðið listform þar sem fólk klæðist búningum sem gjarnan eru innblásnir af bókum, bíómyndum og þáttum, bæði leiknum og teiknuðum, og japanskri dægurmenningu.
Búningarnir geta verið misflóknir en oft er mikið lagt upp úr vandaðri framsetningu, ekki síst þegar keppt er í búningalistinni.
Blær Þorfinns, sem hefur stundað cosplay frá 13 ára aldri, segir íslenska cosplay-samfélagið hafa stækkað mjög á undanförnum árum.
„Cosplay er blanda af tveimur orðum, costume og play,“ segir Blær en aðspurt hvort til sé íslenskt orð yfir cosplay segir hán ekkert slíkt orð vera í notkun. „Eiginlega ekki, finnst mér. Það er bara búningur, þá er það búningaspil.“ Cosplay er þó orðið sem þau nota sem stunda þessa list.
Breiddist út með japanskri dægurmenningu
Strangt til tekið hefur fólk klætt sig í gervi sögupersóna í aldaraðir, til að mynda á grímudansleikjum hefðarfólks í Evrópu. Sú cosplay-hefð sem þekkist í dag er þó jafnan rakin til Bandaríkjanna en oft er talað um að fyrstu cosplay-iðkendurnir hafi stigið fram á sjónarsviðið á vísindaskáldsagnahátíðinni Worldcon þegar hún var haldin í fyrsta skipti árið 1939. Sú bókmenntahátíð er haldin enn þann dag í dag og er þar með líklega sú elsta í heiminum.
Áratugum síðar vakti þessi búningalist áhuga Japana og fólk tók að klæðast búningum á hátíðum þar í landi á 8. áratugnum. Það var svo japanskur rithöfundur, Nobuyuki Takahashi, sem smíðaði nýyrðið „cosplay“ fyrir japanska lesendur, en hann heillaðist af búningahefðinni þegar hann sótti Worldcon í Los Angeles árið 1983.
Vaxandi alþjóðlegur áhugi á japönskum teiknimyndum á 10. áratugnum stuðlaði síðan að hraðri dreifingu cosplay-iðkunar. Í dag er fjöldi fólks sem stundar þessa list og stórir viðburðir henni tengdir eru haldnir víða um heim.
Á Íslandi þarf að hafa fyrir efniviðnum
Cosplay-menning hefur dafnað á Íslandi rétt eins og annars staðar en samkvæmt Blæ þurfa íslenskir iðkendur hins vegar að vera hugmyndaríkari en margir aðrir þegar kemur að efnisöflun fyrir búningagerð.
„Það kostar of mikið að flytja hluti inn þannig að við erum alltaf að fara eins og í Góða hirðinn og Hertex og allar þessar búðir,“ segir Blær. „Bara 100 krónur fyrir eitthvað risalak og þá er maður kominn með ógeðslega mikið efni allt í einu, sem er rosa næs. Efnin kosta líka ógeðslega mikið hérna.“
Cosplay getur tekið á sig margar myndir en undir cosplay-regnhlífinni eru ýmsir hópar sem sérhæfa sig í mismunandi búningagerð. „Það eru alveg margir hópar, eins og víkingahópurinn og Star Wars. Það er skylmingahópur sem blandast líka í Star Wars. Síðan er cosplay, og þá prinsessur, og það er furry-hópurinn,“ útskýrir Blær, sem á einmitt ýmsa búninga sem heyra undir það síðastnefnda.
Í furry-hópnum eru cosplay-iðkendur sem klæðast heilgöllum sem minna á dýr og Blær hefur búið til nokkra slíka búninga. „Síðan er örugglega enn þá dýpra sem ég er ekki búið að kynnast en það er svona heildarhópurinn sem ég er búið að sjá hérna á Íslandi.“
Blær fór nýverið á eina stærstu cosplay-hátíð Evrópu, DoKomi í Düsseldorf sem sótt var af um það bil 215 þúsund manns. Nánar er sagt frá því í lengra viðtali við Blæ í Dagmálum.

