Byggingin sem mun hýsa Náttúruminjasafnið á Seltjarnarnesi er tilbúin,... - MBL.IS
📅 2026-05-24 14:45:54
👁️ 0 lesið
Byggingin sem mun hýsa Náttúruminjasafnið á Seltjarnarnesi er tilbúin, en starfsemi þar getur ekki hafist þar sem safnið bíður eftir fjárheimildum frá fjármálaráðuneytinu til að flytja inn og hefja uppsetningu sýningar.
Þar verður meðal annars sérrými tileinkað geirfuglinum, sem varð útdauður á Íslandi.
Ragnhildur Guðmundsdóttir, forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands, segir í samtali við Morgunblaðið að hönnun sýningarinnar sé tilbúin. „Þetta tengist hallalausum fjárlögum 2027, sem hefur í raun sett verkefnið á ís þessa stundina,“ segir Ragnhildur.
Snýst um að klára verkefnið
Höfuðstöðvarnar sem safnið hyggst flytja í voru upphaflega byggðar árið 2007 í Bygggörðum á Seltjarnarnesi, en framkvæmdir hófust á ný undir lok árs 2023.
„Hönnun sýningarinnar er tilbúin, en það á eftir að fjármagna framkvæmd hennar. Ef við fáum fjármagn getum við hafið uppsetningu sýningarinnar og flutt starfsemina yfir eins og áður stóð til,“ segir Ragnhildur.
Verulegur kostnaður hefur farið í verkefnið að sögn Ragnhildar og snýst þetta bara um að klára það. „Það er mikil samkeppni um þetta fjármagn og mörg önnur brýn verkefni. Aðstæður í samfélaginu eru ekkert sérstaklega hagstæðar núna með verðbólguna eins og hún er þannig að við vitum að staðan er ekki einföld en við teljum að þetta fari inn í fjárlög á næsta ári,“ bætti hún svo við.
Náttúrufræðifélagið var stofnað fyrir 137 árum með það markmið að opna náttúruminjasafn á Íslandi. „137 árum síðar erum við enn að vinna í þessu verkefni, við erum komin með húsnæði og í raun bara í dauðafæri til að klára þetta,“ segir Ragnhildur.
Geirfuglinn var keyptur á uppboði árið 1971 í Bretlandi og verður herbergi tileinkað þessum merka grip á safninu. Það verður svo hluti af stærri sýningu sem heitir Hafið. Þar verður meðal annars beinagrindin af íslandssléttbaknum sem er útdauður og kúfskel sem er elsta þekkta dýr í heiminum og varð 512 ára gamalt.
Staðsetning safnsins þykir afar heppileg, enda er Seltjarnarnes umlukið hafi og húsið stendur á friðlandinu með útsýni að Gróttuvita.
Þrátt fyrir að húsið sé tilbúið og hönnun sýningarinnar klár bíður safnið enn fjárheimilda áður en hægt verður að flytja starfsemina út á nes og opna dyrnar fyrir almenningi.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.
#byggingin
#hýsa
#mun
#náttúruminjasafnið
#sem