Bíll er óökufær eftir umferðaróhapp í umdæmi lögreglustöðvar 1, sem þjónar Miðborginni, Seltjarnarnesi, Austurbæ og Vesturbæ, í gær eða nótt. Engin slys urðu á fólki að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði nokkur afskipti af ökumönnum í gærkvöld og nótt sem stöðvaðir voru fyrir ýmis brot.
Einn ökumaður reyndist aka undir áhrifum áfengis á 154 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 80. Hann reyndist einnig réttindalaus og gaf ekki stefnuljós.
Í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði og Garðabæ hafði lögreglan afskipti af ungmenni á mótorkrosshjóli og var málið afgreitt með foreldrum ökumannsins. Tveir aðrir ökumenn bifhjóla voru stöðvaðir og reyndust þeir báðir undir áhrifum fíkniefna og á ótryggðum hjólum. Annar ökumaðurinn var réttindalaus og hinn bráðabirgðasviptur sökum opinna mála.
Tilkynnt var um umferðarslys þar sem vespu hafði verið ekið utan í bifreið í umdæmi lögreglustöðvar 4, sem þjónar Grafarvogi, Árbæ og Mosfellsbæ. Ökumaðurinn fékk aðhlynningu en hann reyndist réttindalaus.
Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu á veitingastað í umdæmi lögreglustöðvar 1 vegna manns sem neitaði að borga reikning sinn fyrir mat og drykk.