Politico greinir frá og hefur eftir fjórum ónefndum embættismönnum.
Eftir að hafa skipst á skilaboðum við manneskju sem þóttist vera Wiles fór Burnham að gruna að hann ætti ekki í samskiptum við hina réttu Wiles. Burnham og eftirherman hafa skipst á nokkrum skilaboðum síðan hann tók við embætti að sögn eins heimildamanns. Óljóst er hvers efnis þau voru en þau hafi verið „ómerkileg“.
Breska sendiráðið í Washington í Bandaríkjunum vakti máls á atvikinu við Hvíta húsið vegna áhyggna sinna. Talsmaður Downingstrætis sagði: „Við tjáum okkur ekki um þjóðaröryggismál“ um atvikið.
Innan bresku ríkisstjórnarinar hafi verið óttast um að netþrjótar hefðu brotist inn í síma Wiles en embættismaður Hvíta hússins segi svo ekki vera. Á síðasta ári var hafi verið hafin rannsókn eftir að meðal annars öldungadeildarþingmenn og ríkisstjórar fengu smáskilaboð og símtöl frá manneskju sem sagðist vera starfsmannastjóri Trump.