Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hefur ekki ákveðið hvort hann þiggur boð Hildar Björnsdóttur, verðandi borgarstjóra, um formennsku í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur.
Hildur tilkynnti í gær, þegar nýr meirihluti í borgarstjórn var kynntur, að hún hefði boðið Ara stjórnarformennskuna. Gylfi Magnússon, núverandi stjórnarformaður, var kosinn þegar ný borgarstjórn tók við 2022.
Í skriflegu svari til fréttastofu segist Ari vera að íhuga málið, það þurfi að skoða vel og hann ætli að gefa sér tíma til þess áður en hann tekur ákvörðun.