Ánægja með þjónustu Reykjavíkurborgar hefur dalað á kjörtímabilinu og mælist marktækt minni en í nágrannasveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta sýna niðurstöður úr Þjóðmálakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um viðhorf til málefna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Í rannsókn Rúnars Vilhjálmssonar, prófessors í félagsfræði, kemur fram að umtalsverður munur er á ánægju með þjónustu sveitarfélaga og er hún marktækt minni í Reykjavík en annars staðar.
Þriðjungur Reykvíkinga er ánægður með þjónustu borgarinnar, samanborið við sjötíu prósent íbúa í nágrannasveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu. Þá lýsa tveir þriðju íbúa landsbyggðarinnar yfir ánægju með þjónustu síns sveitarfélags.
Marktækt minni ánægja í borginni
Í Reykjavík mælist marktækt minni ánægja nú en í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga fyrir fjórum árum - þá var hún um 42 prósent samanborið við 33 prósent nú. Ánægja helst svipuð í öðrum sveitarfélögum á sama tímabili.
Mikill munur á ánægju mælist milli hverfa í Reykjavík. Fæstir segjast ánægðir með þjónustu í Grafarholti og Úlfarsárdal - þar og í Árbæjarhverfi eru jafnframt flestir óánægðir.
Skipt eftir málaflokkum er minnsta ánægjan í Reykjavík með gatna- og vegamál, sorphirðu og íþrótta- og tómstundamál. Ánægjan er mest með almenningssamgöngur og húsnæðismál - þar lýsir um helmingur Reykvíkinga ánægju með þjónustu borgarinnar.
Nærri þrjú þúsund manns voru í úrtaki könnunarinnar og svarhlutfallið var um fjörutíu prósent.