Að halda valkostum opnum

Að halda valkostum opnum

Að halda valkostum opnum

Að halda valkostum opnum

Ít­ar­leg skoð­un á val­kost­um Ís­lands í breytt­um heimi hef­ur leitt fram kosti og galla við þrjá val­mögu­leika: 1) að reyna að byggja áfram á EES-samn­ingn­um og öðr­um al­þjóða­samn­ing­um, 2) að semja um inn­göngu í Evr­ópu­sam­band­ið og 3) að snúa baki við Evr­ópu og treysta frek­ar tengsl­in í vest­ur. Loka­grein greina­flokks um Evr­ópu­tengsl Ís­lands.

Niðurstaða greinaflokksins er skýr: Vænlegasti kosturinn er að láta á það reyna hvort hagsmunum Íslands yrði ekki bezt borgið með samningi um inngöngu í Evrópusambandið. Með því að fela ríkisstjórn Íslands, með „jái“ í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn, að ljúka aðildarviðræðum fengjust loksins svör við spurningum sem Íslendingar hafa rifizt um í áratugi. Þeim valkosti að ganga í bandalag nánustu samstarfsríkja Íslands yrði haldið opnum. Dyrum ekki lokað að óþörfu. 

Í aðildarviðræðum fengjust svör við því meðal annars hver umgjörð fiskveiða Íslendinga, þar með talið ráðstöfunarrétturinn yfir auðlindum hafsins innan efnahagslögsögunnar, yrði við inngöngu í Evrópusambandið. Svör myndu fást við því hvernig kerfi stuðnings við landbúnað á Íslandi og við atvinnuþróun í landsbyggðunum, innviðauppbyggingu og fleira myndi líta út við inngöngu í Evrópusambandið. Svör myndu fást við því hvernig tímalína inngöngu Íslands í Efnahags- og myntbandalag Evrópu yrði, og þar með hvenær Ísland ætti þess kost að skipta krónunni út fyrir evruna. Svör myndu fást við því hver aðildargjöld Íslands að Evrópusambandinu yrðu, bæði brúttó og nettó. Hvað nettógjöldin áhrærir gæti þó tekið nokkurn tíma eftir inngöngu að láta á það reyna hve mikla styrki Ísland gæti sótt úr sjóðum sambandsins. 

Veikleikar EES

Í grein 2 var spurt: Dugar EES? Niðurstaðan: Veikleikar EES-samstarfsins eru frekar líklegir til að ágerast en hitt. Þetta hafa áhrifamenn í opinberri umræðu í Noregi – fyrrverandi utanríkisráðherra annars vegar og stjórnmálaritstjóri Aftenposten hins vegar – meðal annarra undirstrikað og vakið athygli Íslendinga á nýlega. Rekstur EES hefur vissulega gengið stóráfallalaust á þeim tiltölulega lygna sjó sem ríkti í alþjóðaumhverfi Íslands síðustu áratugi. En í þeim ólgusjó sem fylgir breyttum heimi (og lýst var í grein 1) væri óvarlegt að treysta á að lausnir gærdagsins dugi við áskorunum morgundagsins. 

„Ameríkuvalkosturinn“ ófullnægjandi

Í grein 6 var fjallað um „Ameríkuvalkostinn“ – að snúa baki við Evrópu og treysta frekar tengslin vestur um haf. Niðurstaðan: Fáar leiðir, ef nokkur, væru færar að þessu marki sem gætu þjónað íslenzkum hagsmunum með nokkrum sambærilegum hætti og aðild að ESB. Reyndar væri raunhæfasta leiðin að nánari tengslum við Bandaríkin mjög neikvæð sviðsmynd, þar sem Bandaríkjastjórn myndi beita stórveldisafli sínu til að þvinga Ísland undir sín yfirráð. Í ljósi hótana Bandaríkjastjórnar í garð næsta grannlands Íslands, Grænlands, er þessi neikvæða sviðsmynd því miður allt annað en fjarstæðukennd. Ályktunin af því er að það felst áhætta í því fyrir Ísland að útiloka þann valkost að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið. 

Nú er lag

Í grein 3 voru aðstæður til aðildarviðræðna nú bornar saman við þær sem ríktu þegar Ísland gerði fyrstu atlöguna að slíkum viðræðum. Niðurstaðan: Nýr og sveigjanlegri hugsunarháttur er að festast í sessi meðal forystufólks Evrópusambandsins í stað þeirrar ferils-formfestu sem ríkti af hálfu þeirra sem önnuðust aðildarviðræðurnar við Ísland af hálfu ESB á tímabilinu 2009–2013. Í stuttu máli: Gagnvart Íslandi sýnir ESB nú mun „opnari faðm“ en áður. Ísland er tvímælalaust velkomið í raðir sambandsins og einlægur vilji fyrir hendi þar á bæ að sýna nauðsynlegan sveigjanleika til að finna viðunandi lausnir á stærstu hagsmunamálum Íslands í tengslum við aðild, sérstaklega á sviði sjávarútvegs- og landbúnaðarmála. Í grein 4 er farið vel yfir hvernig meta má samningsstöðu Íslands í þessum tveimur mikilvægu samningsköflum. 

„Talsmenn ESB hafa nú í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar tekið af allan vafa um að í aðildarviðræðum er sannarlega um heilmikið að semja“

Ótvírætt er því að „nú er lag“ fyrir Ísland að láta reyna á aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þær Evrópuþjóðir sem erfiðast gæti verið að hafa sem viðsemjendur – Norðmenn og Bretar – standa utan sambandsins. Talsmenn ESB hafa nú í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar tekið af allan vafa um að í aðildarviðræðum er sannarlega um heilmikið að semja – og það er vilji til að koma mjög til móts við kröfur Íslendinga, finna lausnir sem tryggja bæði hagsmuni Íslands og Evrópusambandsins í heild. Sjá því til vitnis til dæmis nýlegt viðtal við Mörtu Kos, stækkunarmálastjóra ESB. 

Í samanburði við þær aðstæður sem ríktu í fyrri lotu aðildarviðræðna á árunum 2010–2013 er ótvírætt að þær eru Íslandi mun hagfelldari nú en þá. Öll Evrópa var á sínum tíma að kljást við afleiðingar fjármálakreppunnar. Við þær bættust makríldeila, Icesave-deila og fleira sem flækti og tafði aðildarviðræðurnar. ESB hefur ekki hleypt inn nýju aðildarríki síðan um mitt ár 2013, þegar Króatía bættist í raðir þess. Í þetta sinn gæti Ísland jafnvel tekið framúr því umsóknarríki sem nú er komið lengst í aðildarundirbúningi, Svartfjallalandi. 

Betra skjól

Í grein 5 var skoðað hvort Íslandi byðist betra skjól, bæði í efnahagslegu tilliti og með hliðsjón af öryggis- og varnarhagsmunum, með ESB-aðild. Niðurstaðan: Með aðild að tollabandalagi og efnahags- og myntbandalagi Evrópusambandsins myndi Ísland njóta aukins skjóls gegn hugsanlegum áföllum af völdum óvæntrar þróunar í alþjóðasamskiptum, til dæmis ef Trump-stjórnin skyldi fá viðlíka áhuga á Íslandi og hún hefur sýnt gagnvart Grænlandi. Aðild að þessum bandalögum, sem fylgir ESB-aðild, myndi beina utanríkisviðskiptum Íslands í enn meiri mæli en hingað til inn á Evrópumarkaðinn, en sá markaður er nú þegar langmikilvægasti markaður íslenskra utanríkisviðskipta. Hið efnahagslega skjól sem Ísland nyti með þessu myndi líka eiga þátt í að stuðla að efnahagslegum stöðugleika. 

Ótvírætt er einnig að ESB-aðild myndi færa Íslandi verðmætar viðbætur við þær öryggistryggingar sem landið nýtur með aðildinni að Atlantshafsbandalaginu. Sérstaklega er vert að horfa til samstöðuákvæðisins svonefnda, 222. greinar Lissabon-sáttmálans, en það ákvæði skuldbindur öll aðildarríkin til að styðja við aðildarríki sem verður fyrir alvarlegum náttúruhamförum. Sú gagnkvæma öryggisskuldbinding sem felst í grein 42, mgr. 7, kann að hljóta meira vægi eftir því sem grefst undan vægi hinna gagnkvæmu öryggisskuldbindinga NATO-samstarfsins, en þróun í þá átt hefur ótvírætt átt sér stað síðan Donald Trump tók við valdataumum á ný í Bandaríkjunum í byrjun árs 2025. 

Hvað tekur við?

En hvað tekur þá við, fari svo að meirihluti segi „já“ á laugardaginn? 

Íslenzk stjórnvöld myndu þá setja í gang vinnu við að fullmóta samningsmarkmið Íslands, í samráði við hagsmunaaðila og utanríkismálanefnd Alþingis. Þar sem ekki þarf að endurtaka öll formsatriði ferlisins frá fyrri samningalotu má vænta þess að eiginlegar aðildarviðræður gætu hafizt í byrjun næsta árs og að þeim yrði lokið á 18 mánuðum eða svo. Það myndi þýða að drög að aðildarsamningi gætu legið fyrir áður en núverandi kjörtímabil Alþingis rennur út. Sjá má fyrir sér að greidd yrðu atkvæði um samninginn samhliða næstu alþingiskosningum, og fyrir kosningarnar myndi Alþingi samþykkja þá stjórnarskrárbreytingu sem talin er nauðsynleg til að innganga í Evrópusambandið rúmist tvímælalaust innan heimilda stjórnarskrárinnar. Síðan yrði nýkjörið þing að samþykkja þá stjórnarskrárbreytingu óbreytta til að hún öðlaðist gildi. 

Ef svo skyldi fara að allt þetta myndi rætast – að aðildarviðræðum lyki á stuttum tíma (innan kjörtímabils sitjandi ríkisstjórnar), aðildarsamningur yrði samþykktur í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu, stjórnarskrárbreytingar samþykktar af Alþingi bæði fyrir og eftir næstu kosningar, og öllum formsatriðum þar með fullnægt fyrir inngöngu landsins í sambandið – hvernig aðildarríki yrði Ísland þá? Hvaða aðildarríki má búast við að verði nánustu bandamenn Íslands innan sambandsins? 

Óhætt er að fullyrða að Ísland yrði meðal þeirra aðildarríkja sem tortryggnast væri á að lengra yrði gengið í átt að nánari pólitískum samruna innan sambandsins. Það hve hátt hlutfall kjósenda vill segja „nei“ í atkvæðagreiðslunni um endurupptöku aðildarviðræðna endurspeglar þá tortryggni sem er útbreidd meðal Íslendinga gagnvart hugmyndum um nánari Evrópusamruna. Þeir eru reyndar ekki eina Evrópuþjóðin þar sem slíkur hugsunarháttur er útbreiddur. Sögulega séð hafa til að mynda Danir verið tregir til að taka þátt í metnaðarfullum áföngum í átt að frekari samruna (fengu til dæmis undanþágur frá vissum þáttum Maastricht-sáttmálans). Íslenskir „evróskeptíkerar“ munu því eiga auðvelt með að finna sér bandamenn í sambandinu. 

Einnig er vert að rifja upp að á Möltu, Miðjarðarhafs-eyríkinu sem gekk í ESB árið 2004, var þjóðin í aðdraganda aðildarsamninga skipt algerlega í tvær jafnstórar fylkingar með og á móti inngöngu. Alla tíð síðan af inngöngunni varð hafa Maltverjar hins vegar mælzt meðal þeirra aðildarþjóða sem lýsa mestri ánægju með aðildina. Kýpverjar, hin Miðjarðarhafs-eyþjóðin sem gekk í ESB árið 2004, hafa líka mælzt mjög ánægðir með veruna í ESB. Ísland yrði þannig þriðja litla eyríkið innan ESB ef af aðild skyldi verða, og nærtækt að leita í reynslubanka Maltverja og Kýpverja af því að spjara sig með góðum árangri innan hins stóra ESB-kerfis síðastliðna tvo áratugi. 

Ísland á sér hauka í horni 

Ísland á sér reyndar marga hauka í horni innan sambandsins. Augljóslega eru hin Norðurlöndin í þeim hópi, en með Íslandi yrðu fjögur af fimm fullvalda ríkjum Norðurlanda aðilar bæði að ESB og NATO. Eingöngu Noregur og sjálfstjórnarsvæðin Færeyjar og Grænland stæðu áfram utan ESB. Eystrasaltsríkin þrjú, sem einnig eru í nánu samstarfi við Norðurlöndin (NB8), myndu líka taka Íslendingum opnum örmum. Með hjálp hinna norrænu kollega yrðu fulltrúar Íslands fljótir að tileinka sér leikreglur hagsmunagæslu aðildarríkja í löggjafarstarfi ESB og í öðru samstarfi sem þar á sér stöðugt stað. Stór hluti íslenzkrar stjórnsýslu hefur á síðustu áratugum tekið þátt í rekstri EES-samningsins og þekkir því vel til „á göngunum í Brussel“. Svo ganga má út frá því sem vísu að aðlögun íslenzku stjórnsýslunnar að fullri aðild að ESB myndi  ganga hratt og vel fyrir sig. 

„Ótvírætt má líka telja Þýzkaland, mesta þungavigtarríki ESB, til náinna bandamanna Íslands innan ESB“

Ótvírætt má líka telja Þýzkaland, mesta þungavigtarríki ESB, til náinna bandamanna Íslands innan ESB. Þjóðverjar eru upp til hópa mjög velviljaðir Íslandi og um að gera fyrir íslenzk stjórnvöld að nýta sér þann velvilja í hagsmunagæzlustarfinu innan ESB. Svipaða sögu má segja um Pólland, enda hafa tengsl Póllands og Íslands orðið sífellt nánari síðan Pólland gekk í ESB (og þar með líka EES) árið 2004. Pólski forsætisráðherrann Donald Tusk sagði meira að segja, þegar hann hitti hina íslenzku starfssystur sína Kristrúnu Frostadóttur í febrúar síðastliðnum (og gaf henni Prins póló), að ESB yrði að sýna sveigjanleika í aðildarviðræðum við lítil ríki eins og Ísland. Hann hét líka öllu því liðsinni sem Pólverjum væri unnt að veita (sbr. frétt RÚV). 

Sæti við borðið

Hagsmunagæzlustarfinu innan ESB þarf að sjálfsögðu að sinna af eindrægni frá fyrsta aðildardegi. En það hagsmunagæzlustarf yrði á mun meiri jafningjaforsendum en hagsmunagæzlustarfið innan EES var nokkurn tímann. Ísland ætti sæti við borðið þar sem ákvarðanirnar eru teknar. Öllu ESB-kerfinu bæri að taka tillit til hagsmuna Íslands, rétt eins og hagsmuna hinna 27 aðildarríkjanna. Það yrði mikil breyting frá núverandi stöðu Íslands sem EFTA-EES-ríkis utan ESB. 

„Nei“ lokar dyrum

Fari hins vegar svo að meirihluti þeirra sem greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardaginn skyldu hafna því að aðildarviðræðum við Evrópusambandið yrði fram haldið, færi málið aftur á ís. Öllum þeim spurningum sem fá mætti svör við í aðildarviðræðum fengjust engin svör við. Ísland sæti uppi með að hafa ekki annan valkost en að reyna að gera það bezta úr aðildinni að EES. Og vona að ólgan í alþjóðaumhverfi landsins verði ekki til þess að grafa frekar undan gildi EES-samningsins. 

#halda #opnum #valkostum


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27131/ad-halda-valkostum-opnum/

📰 Aðrar fréttir

Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi - Vísir
Þetta segir Andrea Örk Bernhöft, nítján ára, sem hefur glímt við áráttu- og þráhyggjuröskun, eða OCD, frá barnæsku. Fyrstu einkennin komu fram þegar h...
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Myndir frá Austur­velli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ - Vísir
Viktor Freyr ljósmyndari Vísis var á Austurvelli fyrr í dag og fangaði þessar myndir. Rúmlega 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun um verndun Se...
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
📅 11.10.2026 👁️ 2
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk
S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samkomulag...
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
📅 11.10.2026 👁️ 2
Reform would suspend asylum system for parliamentary term if in government
All asylum applications would be rejected and existing ones voided, with all claimants marked for deportation.
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
📅 11.10.2026 👁️ 2
Hvað á að gera við gömlu kjörkassana?
Gömlu viðarkjörkassarnir, sem hefur verið skipt út fyrir plast, fá framhaldslíf víða um land. Akureyringur, sem tryggði sér tvo kassa í vikunni, segir...
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ - Vísir
Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samstarfið hafi verið undirritað nú í kvöld og byggi á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrg...
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
📅 11.10.2026 👁️ 2
Abbas frestar kosningum enn á ný – hefur setið við völd í 21 ár án endurkjörs
Mahmoud Abbas, 90 ára forseti Palestínsku heimastjórnarinnar, hefur enn á ný frestað þingkosningum á palestínsku svæðunum. Abbas var kjörinn forseti á...
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfir­lýsingu Trumps - Vísir
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti svokallað orkuvopnahlé milli Rússlands og Úkraínu á færslu sinni Truth Social fyrr í dag. Vólódímír Selenskí ...
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
Eld­fimt 50+: Tengdamömmusögur - Vísir
Við erum að tala um tengdamömmusögurnar! Það óþægilega er samt að í þetta sinn snúast sögurnar ekki um tengdamömmuna þína eða öll óumbeðnu ráðin sem h...
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
📅 11.10.2026 👁️ 3
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“
Mótmæli voru haldin á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík í dag gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þús...
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
📅 11.10.2026 👁️ 3
Vinnuslysum fækkar eftir rafbyssuvæðingu
Frá september 2024 hafa lögreglumenn borið rafbyssur við skyldustörf sem valdbeitingartæki. Á þeim tíma hefur slysum þeirra fækkað umtalsvert. Til vin...
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
📅 11.10.2026 👁️ 3
„Þarna er hann í innanlandspólitískum leik á kostnað Úkraínu“
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að það sé „köld tuska“ í andlitið á Úkraínumönnum og stuðningsþjóðum þeirra að Donald Trump Bandaríkja...
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
📅 11.10.2026 👁️ 3
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa
Trump tilkynnir tafarlaust orkuvopnahlé – Kyiv bíður skýringa Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti fy...
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 3
„Við erum ekkert að biðja um ein­hverja sér­með­ferð“ - Vísir
Unnur segist taka því hlutverki mjög alvarlega að sveitarfélögin í landinu beri ábyrgð á menntun grunnskólabarna. „En til þess að geta lagað það sem s...
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
📅 11.10.2026 👁️ 3
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu
Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar fimm sjónvarpsstöðvar vegna fréttasniðgöngu Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Dómsmálaráðuneyti Ban...
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
📅 11.10.2026 👁️ 3
Orangutans released back into Borneo forest after devastating fires
Rescuers moved the apes after their habitats were threatened by intense wildfires over the summer.
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Er eðli­legt að langa í kyn­líf eftir makamissi? - Vísir
Sæll og takk fyrir einlæga spurningu. Stutta svarið er já. Það sem þú lýsir er eðlilegt og það er ekkert mótsagnakennt við að sakna konunnar þinnar sá...
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Björn Jón skrifar: Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
Mynd Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tígrisdýr sem varð manni að bana í dýragarði verður ekki aflífað
Dýragarðurinn í Jórvíkurskíri á Englandi hefur tilkynnt að tígrisdýrið sem varð manni að bana í gær verði ekki aflífað.Tígrisdýrið réðst á manninn þeg...
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
📅 11.10.2026 👁️ 3
Singapore Grand Prix: Lewis Hamilton apologises to Ferrari as Kimi Antonelli moves to brink of title
Lewis Hamilton's incorrect strategy call during the Singapore Grand Prix means Kimi Antonelli can win the world title at the next race in Austin.
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eyjamenn og Austfirðingar vilja ekki vera í sama lögregluembætti
Austfirðingar og Eyjamenn vilja ekki vera í sama lögregluembætti og hafa óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra. Hún hefur boðað fækkun lögregluembætt...
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Brotist inn í tvö fyrir­tæki - Vísir
Er þetta meðal þeirra 69 mála skráðu í kerfi lögreglu í dag. Innbrotin áttu sér stað í umdæmi lögreglustöðvar eitt sem sinnir útköllum í Miðbæ, Vestur...
Man City: Prime Minister Andy Burnham to release details of his meetings with Man City owners
📅 11.10.2026 👁️ 4
Man City: Prime Minister Andy Burnham to release details of his meetings with Man City owners
Andy Burnham has faced criticism for comments he made in the wake of Manchester City being found guilty of all charges related to breaches of the Prem...
PM says it is 'clear' Russia interfered with Brexit referendum
📅 11.10.2026 👁️ 4
PM says it is 'clear' Russia interfered with Brexit referendum
He says voters were not "sufficiently" informed about how foreign actors sought to disrupt UK democracy.
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Ósjálfbjarga vegna ölvunar
Einn maður var handtekinn fyrir ofbeldi í heimahúsi í dag, í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem er Breiðholt og Kópavogur. Þetta kemur fram í dagbók lögreg...
Segir leigubremsu lækka verðbólgu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Segir leigubremsu lækka verðbólgu
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um leigubremsu hefur vakið miklar deilur og seðlabankastjóri sagði áformin vera heimskuleg. Stefán Ólafsson, hagfræðiprófe...
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu Vís­inda­menn rann­saka rúst­ir borg­ar sem hef­ur leg­ið und­ir vatni í Kirg­ist­an u...
Fær auka­dag til stjórnar­myndunar - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Fær auka­dag til stjórnar­myndunar - Vísir
Þetta tilkynnti þingforsetinn Andreas Norlén, fulltrúi Moderaterna, eftir hádegið en hann mun hitta Andersson á þriðjudagsmorgun þar sem hún getur ann...
Fleiri risaskjaldbökur á Seychelles-eyjum en íbúar
📅 11.10.2026 👁️ 4
Fleiri risaskjaldbökur á Seychelles-eyjum en íbúar
Frjálsar risaskjaldbökur eru mun fleiri en áður hefur verið talið.Ný talning hefur leitt í ljós að um 180 þúsund Aldabra-risaskjaldbökur eru á Aldabra...
Poland detains man suspected of planning assassination of PM Donald Tusk
📅 11.10.2026 👁️ 3
Poland detains man suspected of planning assassination of PM Donald Tusk
Police received credible information about possible attacks against Donald Tusk and his defence minister.
Akra­nes og Akur­eyri dæmi þar sem hættan sé raun­veru­leg - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Akra­nes og Akur­eyri dæmi þar sem hættan sé raun­veru­leg - Vísir
Samkvæmt nýrri samgönguáætlun sem á að gilda til 2040 er gert ráð fyrir að ríkisframlög til sjóvarna lækki úr 181 milljón niður í 144 milljónir til ár...
Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp - Vísir
Eldurinn kom upp um tólfleytið í hádeginu gær en hann kviknaði í áltökubíl í kerskála álversins sem notaður er til að flytja fljótandi málm. Slökkvili...
New data says there is a 77% chance of a volcanic eruption in the Canary Islands within 50 years
📅 11.10.2026 👁️ 4
New data says there is a 77% chance of a volcanic eruption in the Canary Islands within 50 years
The Spanish Government has officially recognised a 77.69% probability of at least one volcanic eruption occurring somewhere in the Canary Islands with...
Saudi Arabia's Riyadh airport hit by second Houthi strike in two days
📅 11.10.2026 👁️ 4
Saudi Arabia's Riyadh airport hit by second Houthi strike in two days
The Yemeni group says it carried out attacks that killed 13 people over the weekend and targeted two airports and oil facilities.
Trump lýsir yfir hléi á árásum á orkuinnviði
📅 11.10.2026 👁️ 4
Trump lýsir yfir hléi á árásum á orkuinnviði
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Rússland og Úkraína hafi gert með sér samkomulag um að láta af árásum á orkuinnviði hvort annars.Volodymyr Zel...
What British expats should check before using UK online services abroad
📅 11.10.2026 👁️ 4
What British expats should check before using UK online services abroad
Moving from the UK to the Canary Islands does not necessarily mean giving up every online account or subscription. The truth is that many people conti...
Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
📅 11.10.2026 👁️ 5
Óeirðirnar í Frakklandi eiga sér skýringar
Mynd Gífurlegar óeirðir í Frakklandi undanfarnar vikur hafa vakið heimsathygli og
Sigvaldi Einarsson skrifar: 99,99 prósent mannkyns vilja frið – Hvers vegna ráða hinir?
📅 11.10.2026 👁️ 6
Sigvaldi Einarsson skrifar: 99,99 prósent mannkyns vilja frið – Hvers vegna ráða hinir?
Á föstudaginn tilkynnti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, víðtækar refsiaðgerðir gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum í Haag. Dómstóllinn ve...
„Ég hef oft hugsað um þennan dag og þessa stund“
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Ég hef oft hugsað um þennan dag og þessa stund“
Um helgina eru 40 ár frá leiðtogafundi Reagans og Gorbatsjov í Höfða. Leiðtogafundurinn olli straumhvörfum í Kalda stríðinu og setti allt í hliðina í ...
Tvenn mótmæli samtímis gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði
📅 11.10.2026 👁️ 4
Tvenn mótmæli samtímis gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði
Tvenn mótmæli gegn fyrirhuguðu sjókvíaeldi í Seyðisfirði hófust klukkan 15 í dag. Þau eru annars vegar haldin á Austurvelli í Reykjavík og á Seyðisfir...
112 new residential homes for locals will be ready in Las Chafiras in 2027
📅 11.10.2026 👁️ 3
112 new residential homes for locals will be ready in Las Chafiras in 2027
A new residential complex of 112 affordable homes for local workers and families is set to be finished in Las Chafiras, San Miguel de Abona, in 2027, ...
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu
📅 11.10.2026 👁️ 4
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu
Gríska ríkið dæmt til að greiða 300.000 evrur vegna andláts eftir COVID-bólusetningu Fréttin11. október 2026Covid bóluefni, Dómsmál, ErlentLeave a Com...
Hafi verið beggja vegna borðsins - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Hafi verið beggja vegna borðsins - Vísir
Vísir hefur undir höndum tölvupósta þar sem Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar MAST, felur Kjartani Davíð Sigurðssyni að gera till...
Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Kom af fjöllum eftir til­kynningu Trump um orku­vopna­hlé - Vísir
Donald Trump tilkynnti um vopnahléið á samfélagsmiðli sínum Truth Social án þess að gefa miklar upplýsingar um útfærsluna, annað en að það tæki gildi ...
Poland stabbings driven by online glorification of violence, Tusk says
📅 11.10.2026 👁️ 4
Poland stabbings driven by online glorification of violence, Tusk says
The PM was speaking after violent attacks at Polish schools this week left one dead and others injured.
Eftir­minni­legir gull­molar úr fjöru­tíu ára sögu - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Eftir­minni­legir gull­molar úr fjöru­tíu ára sögu - Vísir
Kvöldfréttirnar voru fastur liður á skjánum þar til 31. ágúst síðastliðinn. Ekki leið sú Þorláksmessa að fréttamenn smökkuðu ekki skötu. Kryddsíld hef...
Nafn hestaeiganda fór úr WorldFeng í Horseday – fræðslu skorti
📅 11.10.2026 👁️ 4
Nafn hestaeiganda fór úr WorldFeng í Horseday – fræðslu skorti
Horseday ehf. veitti hestaeiganda ekki fullnægjandi fræðslu um vinnslu persónuupplýsinga hennar í smáforritinu Horseday, samkvæmt úrskurði Persónuvern...
Þrjá­tíu grindhvalir við Hólma­vík - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
Þrjá­tíu grindhvalir við Hólma­vík - Vísir
„Þetta gerist ekki oft að þeir séu svona margir saman, þetta voru örugglega svona þrjátíu stykki,“ segir Júlíus í samtali við Vísi. Júlíus sem er íbúi...
„Þetta var al­gjör­lega magnað“ - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 4
„Þetta var al­gjör­lega magnað“ - Vísir
„Þetta gerist ekki oft að þeir séu svona margir saman, þetta voru örugglega svona þrjátíu stykki,“ segir Júlíus í samtali við Vísi. Júlíus sem er íbúi...
Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé
📅 11.10.2026 👁️ 4
Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé
Zelenskí tilbúinn til kosninga ef Rússland samþykkir 60 daga vopnahlé Fréttin11. október 2026ErlentLeave a Comment Volodimír Zelenskí, forseti Úkraínu...