Tekjur hins opinbera jukust mun minna en útgjöldin á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt tölum Hagstofunnar sem voru birtar í dag.
Tekjur jukust um 4,3% en útgjöld um 6,1%. Þetta átti sinn þátt í að afkoma hins opinbera var neikvæð um 48,3 milljarða króna. Hallinn nemur 3,8% af vergri landsframleiðslu en var 3,0% á sama ársfjórðungi í fyrra.
Launakostnaður jókst um 7,2%, útgjöld vegna kaupa á vöru og þjónustu um 8,5% og félagslegar tilfærslur til heimila um 22,9%.