27 hið minnsta létu lífið þegar eldur braust út á bar í norðurhluta Bangkok, höfuðborgar Tælands, fyrr í dag.
Viðbragðsaðilar fengu tilkynningu um brunann um miðnætti að staðartíma.
Sjónarvottar lýsa því að reykur hafi risið úr lekaliða nálægt tónleikasviði staðarins. Þá hafi rafmagninu slegið út og sprenging orðið í kjölfarið.
Búið er að ná tökum á eldinum.