Ástandið hefur róast nokkuð í Ceuta, sem er lítið svæði við ströndina í Norður-Afríku, gegnt Gíbraltar sem Spánverjar stjórna. Talið er að um 70 þúsund flóttamenn hafi nú snúið aftur til Marokkó en ljóst er að 72 létu lífið í hamaganginum þegar fólkið lagði til sunds til að synda fram hjá landamæragirðingu sem skagaði út í Miðjarðarhafið og aðskilur Ceuta frá Marokkó.
Evrópusambandið hefur boðað innanríkisráðherra ESB á sérstakan neyðarfund vegna málsins í dag en Spánverjar hafa verið gagnrýndir nokkuð síðustu daga vegna uppákomunnar, sérstaklega af Ítölum sem tóku Schengen samkomulagið tímabundið úr sambandi gagnvart Spáni vegna málsins. Spánverjar svöruðu fyrir sig og gagnrýndu Ítali mjög, enda er Ceuta ekki hluti af Schengen, þótt Spánn sé það, og því engin þörf á að blanda Schengen samstarfinu inn í málin.
Von der Leyen þakkaði þó Pedró Sanchez forsætisráðherra Spánar fyrir skjót viðbrögð við ástandinu í Ceuta en hún segir ljóst að gera verði meira til þess að verja landamærin en hingað til hafi verið gert, sérstaklega á þeim stöðum þar sem mest reynir á.