Ótímabundið verkfall flugvirkja hjá Icelandair hófst á miðnætti og hefur öllum ferðum flugfélagsins frá Keflavíkurflugvelli í morgun verið aflýst.Alls hefur 26 ferðum frá Keflavíkurflugvelli sem fara átti í morgun verið aflýst. Ferðir með erlendum flugfélögum eru aftur á móti allar á áætlun. Sem stendur eru brottfarir Icelandair frá Keflavík síðdegis á áætlun, en ljóst er að það mun breytast ef verkfallið leysist ekki.
Verkfall flugvirkja hafið – Öllum ferðum Icelandair í morgun aflýst