Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Vogi, hefur miklar áhyggjur af stöðunni hjá SÁÁ og segir mögulegt að yfirvöld grípi inn í starfsemina. Í versta falli gæti farið svo að skrúfað verði fyrir fjárveitingar með þeim afleiðingum að starfsemin stöðvist.„Ég hef mjög miklar áhyggjur af stöðunni og það er hræðilega sorglegt að fólk skilji ekki hverju það er búið að stofna í voða. Ég held að yfirvöld geti á einhverjum tímapunkti gripið inn í,“ segir Valgerður í samtali við Morgunblaðið.
Valgerður óttast að starfsemi SÁÁ stöðvist: „Búið að stofna þessu í voða