Að minnsta kosti átta létust í árásum Úkraínu á nokkrum héruðum í Rússlandi síðasta sólarhring, að sögn rússneskra yfirvalda, sem fullyrða að sumar árásanna hafi verið gerðar hundruð kílómetra frá víglínunni.
Rússland og Úkraína hafa bæði hert árásir sínar á undanförnum mánuðum, á sama tíma og viðræður undir forystu Bandaríkjanna um að binda enda á stríðið hafa að mestu legið niðri.
Stjórnvöld í Úkraínu hafna því að árásirnar beinist gegn almennum borgurum, árásirnar séu réttmætar hefndaraðgerðir vegna mannskæðra árása Rússa í Úkraínu. Markmiðið sé jafnframt að auka þrýsting á Moskvu til að hefja samningaviðræður.