Tvö alvarleg umferðarslys hafa orðið á Norðvesturlandi síðdegis í dag og í kvöld. Umferð um landshlutann er mjög þung á frídegi verslunarmanna og fjöldi fólks á heimleið.
Um klukkan 16:30 varð þriggja bíla árekstur rétt sunnan við Vatnsdalshóla. Höskuldur Birkir Erlingsson, staðgengill yfirlögregluþjóns á Norðurlandi vestra, segir áreksturinn tilkominn vegna framúraksturs.
„Það skella saman tveir bílar, fara framan á hvorn annan eða svona nánast. Svo lendir sá þriðji inni í þessu líka. Hann var með hjólhýsi. Hann er að vísu ekki eins skemmdur og hinir tveir. Hinir tveir eru mjög skemmdir og ógangfærir,“ segir Höskuldur.
Sjúkrabíll var sendur á vettvang frá Blönduósi. Höskuldur segir útlit fyrir að enginn hafi slasast alvarlega í árekstrinum. Loka þurfti veginum við slysið um hríð, með tilheyrandi umferðartöfum, en hann er nú opinn.
Ég held að fólk eigi að keyra varlega frekar en að vera stressað í umferðinni
Seinna umferðarslysið varð um sex í kvöld á þjóðveginum í Húnaþingi vestra, á Hrútafjarðarhálsinum. Höskuldur segir að þá hafi tveir bílar einnig skollið saman, með þeim afleiðingum að annar bíllinn valt. Þegar fréttastofa náði tali af Höskuldi voru viðbragðsaðilar á leið á vettvanginn. Hann segir einhver meiðsl hafa orðið á fólki en vissi ekki hvort þau væru alvarleg.
„Það má reikna með því að það verði einhverjar umferðartafir út af því.“
Höskuldur hvetur vegfarendur til að fara varlega í umferðinni og drífa sig ekki um of.
„Þetta hefst allt ef við hjálpumst bara að,“ segir hann.
„Hér á Norðurlandi vestra er afskaplega gott veður, heiðskírt og sól. Ég held að fólk eigi að keyra varlega frekar en að vera stressað í umferðinni.“
Umferð gengið slysalaust á sunnanverðu landinu
Umferðin hefur gengið vel á sunnanverðu landinu í dag. Þorsteinn M. Kristinsson, varðstjóri á Suðurlandi, segir að umferð um Selfoss hafi raunar verið minni en flestar helgar í sumar.
„Umferðin hjá okkur hefur gengið bara mjög vel í dag. Það sem mestu skiptir máli er að hún er slysalaus að mestu, ef ekki öllu. Hún hefur dreifst svolítið jafnt þannig að það hafa ekki myndast neinar teppur eins og þekktar teppur hérna í kringum Selfoss eða í gegnum Selfoss,“ segir Þorsteinn.
Pétur Sveinsson, varðstjóri á umferðardeild hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að umferð hafi einnig gengið slysalaust í kringum höfuðborgina.
„Umferðin hefur verið bara nokkuð þétt alla helgina og við erum búin að vera með töluverða viðveru á þjóðveginum, bæði Suðurlands- og Vesturlandsvegi, og ég man ekki eftir að það hafi komið nein tilkynning eða útköll varðandi slys eða óhöpp. Það hefur þá bara verið eitthvað alveg minni háttar sem hefði ekki borist til okkar.“