Tvær þyrlur skullu saman við slökkvistörf í Grikklandi í dag. Miklir skógareldar hafa kviknað víða og breiðast hratt út vegna mikils hvassviðris. Þúsundir hafa þurft að yfirgefa heimili sín.
Þyrlurnar voru við slökkvistörf vestur af höfuðborginni Aþenu þegar þær skullu saman. Tveir voru í hvorri þyrlu en samkvæmt ríkissjónvarpinu E.R.T. var einum bjargað, en hinna er leitað.
Kyriakos Mitsotakis forsætisráðherra Grikklands sagði í dag að veðurskilyrði yrðu áfram óhagstæð og næstu dagar mjög erfiðir. Þrír slökkviliðsmenn létust við slökkvistörf í síðustu viku.