Sex gista í fangageymslu í Vestmannaeyjum eftir nóttina. Lögregla hafði í mörg horn að líta en fjöldi fólks skemmti sér á Þjóðhátíð í Herjólfsdal.
Í tilkynningu segist lögreglan hafa haldið uppi stífu fíkniefnaeftirliti á hátíðinni. Níu mál tengd fíkniefnum hafi komið upp. Eitt þeirra sé til rannsóknar vegna gruns um sölu fíkniefna.
Tvær minniháttar líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu sem sinnti einnig ýmsum verkefnum tengdum ölvun.